157. löggjafarþing — 120. fundur,  9. júní 2026.

Störf þingsins.

[13:00]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Nú liggja fyrir þinginu tvö risastór auðlindamál; lagareldi annars vegar og vindorkan hins vegar. Þetta eru mál sem við þurfum að sýna skynsemi og hafa langtímasýn fyrir náttúruna, fyrir samfélög og fyrir landið allt. Mig langar til að víkja máli mínu sérstaklega að vindorkunni. Nú eru yfir 40 vindorkuverkefni í skoðun og í því frumvarpi sem hæstv. ráðherra hefur lagt fram geta tillögur að verkefnum orðið miklu fleiri; tillögur sem stjórnsýslan þyrfti að taka afstöðu til og stjórnmálin sömuleiðis.

Virðulegur forseti. Slíkt eykur ekki skilvirkni. Þvert á móti flækir það hlutina. Það skapar óþarfadeilur sem eru kostnaðarsamar og valda jafnvel djúpum sárum milli aðila í heimabyggð. Slík nálgun er heldur ekki hagkvæm fyrir raforkukerfið. Hún er beinlínis áhættusöm fyrir flutningskostnað og þar með fyrir samkeppnishæfni. Ragna Árnadóttir, nýr forstjóri Landsnets, fjallaði um málið nýverið í viðtali við Morgunblaðið. Þar fjallaði hún um þá áskorun að til þess að geta staðið straum af sveiflum þessa orkugjafa, sem vindorkan sannarlega er, þá þarf að tryggja næga flutningsgetu án þess að plássið í kerfinu sé endilega alltaf nýtt. Það þýðir að fjárfestingar- og rekstrarkostnaður á dreifingaraðila eykst á hvert framleitt kílóvatt og ef tekjur aukast ekki á móti þá lendir þessi kostnaður á þeim notendum sem fyrir eru í kerfinu, almenningi og atvinnulífi. Í umfjölluninni er vísað í kerfislægar áskoranir sem Svíar hafa þurft að glíma við í þessu samhengi og hafa leitt til þeirrar niðurstöðu; aukins kostnaðar.

Virðulegur forseti. Jafnframt bendir forstjórinn á hversu mikilvægt það er að staðsetja þessi verkefni rétt sé markmiðið að draga úr (Forseti hringir.) flutningskostnaði. Ég verð að segja að í þessu frumvarpi er verið að horfa á aukinn fjölda tillagna á meðan þetta (Forseti hringir.) eru staðreyndir málsins. Þetta frumvarp er gildra, snúum af þessari braut og gefum málinu meiri tíma. Íslensk náttúra,(Forseti hringir.) byggðir og samkeppnishæfni atvinnulífs eiga það skilið.

(Forseti (ÞSv): Forseti biður þingmenn um að virða ræðutímann.)