157. löggjafarþing — 120. fundur,  9. júní 2026.

Störf þingsins.

[13:05]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Hærri skattar og gjöld hafa verið okkur hugleikin á undanförnum misserum í tíð núverandi vinstri stjórnar sem hikar ekki við að auka álögur á heimili og fyrirtæki. Eitt er að auka skattbyrðina beint með ákvörðun fyrir opnum tjöldum en annað þegar byrðarnar eru auknar vegna nýrra túlkana, t.d. á skattalöggjöf, og tilkynna skattgreiðendum skyndilega að þeim beri nú að greiða umtalsvert hærri gjöld en áður og það jafnvel afturvirkt. Samkvæmt mínum upplýsingum er komin upp allsérstök og mjög alvarleg deila forsvarsmanna bílaleigufyrirtækja við skattyfirvöld sem að óbreyttu gæti gengið frá bílaleigubransanum í heild sinni hér á landi. Um er að ræða að bílaleigufyrirtæki hefur fengið tilkynningu um að því sé nú gert að greiða virðisaukaskatt af sölu valkvæðra trygginga samhliða útleigu bifreiða til ferðamanna eða annarra. Í leiðbeiningum til rekstraraðila árið 2017 var fullyrt að bílaleigu væri heimilt að selja þessar valkvæðu tryggingar án virðisaukaskatts og tveimur árum síðar var það áréttað í lögum. En nú ber svo við að einstakur rekstraraðili hefur fengið endurákvörðun á virðisaukaskatti upp á rúmar 700 millj. kr., auk álags og dráttarvaxta, fyrir árin 2024 og 2025. Það getur hver og einn ímyndað sér hvaða áhrif slíkur eftiráreikningur hefur á rekstur fyrirtækisins. Það er augljóst að fyrirtækin geta ekki staðið undir þeim kröfum og verði sömu nálgun beitt víðar er raunhæf hætta á keðjuverkandi áhrifum, fjöldagjaldþrotum og atvinnuleysi starfsfólks í greininni og jafnvel hjá fleiri aðilum sem selja valkvæðar tryggingar eins og hjá þeim sem selja raftæki, svo dæmi sé tekið. Það er brýnt að fjármálaráðuneytið taki málið til skoðunar án tafar, tryggi meðalhóf og stuðli að málefnalegri úrlausn áður en til alvarlegs ástands kemur hjá þeim fyrirtækjum sem um ræðir. Hér er verið að koma aftan að fyrirtækjunum í landinu.