útlendingar og lögreglulög.
Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti við 3. umræðu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum, verndarsamkomulag Evrópusambandsins.
Nefndin hefur fjallað um málið að nýju á milli 2. og 3. umræðu. Við umfjöllun um málið hafa komið fram sjónarmið varðandi það hvort aðrar gerðir verndarsamkomulags Evrópusambandsins séu skuldbindandi fyrir Ísland. Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu og er jafnframt rakið í nefndaráliti meiri hlutans við 2. umræðu á þskj. 1269 eru aðrar gerðir verndarsamkomulagsins en þær sem mælt er fyrir um upptöku á í frumvarpinu ekki skuldbindandi fyrir Ísland og verða því ekki innleiddar með fyrirliggjandi frumvarpi.
Einnig kemur fram í greinargerð að aðrar gerðir verndarsamkomulagsins verði teknar til frekari skoðunar á síðari stigum með hliðsjón af þróun regluverksins, reynslu annarra Evrópuríkja af innleiðingu samkomulagsins og mati á hagsmunum Íslands. Af því tilefni áréttar meiri hlutinn sérstaklega að verði þetta frumvarp að lögum sé hvorki stefnt að upptöku annarra gerða verndarsamkomulags Evrópusambandsins né sé það yfirlýsing um fyrirheit um frekari aðlögun Íslands að verndarsamkomulaginu.
Jafnframt er það mat meiri hlutans að heimildir Íslands, eins og þær eru nú samkvæmt ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar, verði óbreyttar samkvæmt ákvæðum hinnar nýju AMMR-reglugerðar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Undir álit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sandra Sigurðardóttir.