157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[13:14]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar útskýringar. Ég ætla að segja það hér að ég er mjög hlynnt því að við séum á tánum þegar kemur að þessari löggjöf varðandi útlendinga. Við vitum að þetta er mjög kvikur málaflokkur. Ég er mjög hlynnt Schengen-samstarfinu. Ég veit að við höfum mikið á því að græða og mér fannst skynsamlegt að við tækjum upp þann hluta sem félli undir Schengen. En ég vildi bara árétta og spyrja hv. þingmann: Er það engu að síður ekki rétt skilið hjá mér að ef Ísland væri í Evrópusambandinu, eins og umræða hefur verið um, þá væri ekkert val um að velja úr því hvað það er sem við innleiðum? Þá þyrftum við hreinlega að innleiða allan verndarpakka Evrópusambandsins. Er það ekki alveg örugglega rétt skilið hjá mér?