útlendingar og lögreglulög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar seinna andsvar. Það er nú þannig að í umræðu um Evrópusambandið er gjarnan verið að semja við sjálfan sig um það hvað verður ef við förum í Evrópusambandið og hér er hv. þingmaður að leggja það fyrir mig að taka afstöðu til þess hvernig hlutirnir verða eftir hugsanlega inngöngu Íslands í Evrópusambandið (Gripið fram í.) sem er algjörlega ómögulegt fyrir mig að gera.
Hins vegar get ég svo sem alveg sagt það að við blasir að ef við erum fullgildir aðilar að Evrópusambandinu erum við væntanlega með samsvarandi aðkomu að svona málum eins og önnur lönd. Hins vegar er rétt að benda á, t.d. eins og með Dani, að Danir eru ekki aðilar að útlendingamálum Evrópusambandsins.