157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[13:16]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Frú forseti. Í upphafi máls míns vil ég þakka meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir samstarfið í þessu máli sem var afgreitt út úr nefndinni núna í fyrramálið, í morgun segi ég. [Hlátur í þingsal.] Gaman að vekja gleði hjá hæstv. dómsmálaráðherra hvað þetta varðar. Ég ætla nú einmitt að fara að vekja máls á vinnubrögðum hæstv. ráðherra. (Gripið fram í: Í fyrramálið?) Nei, bara hér í pontu.

Málið kemur í búningi stjórnarfrumvarps og bar þess augljóslega merki að lítill skilningur var á efni þess. Hér er upptaka innleiðingar á Evrópureglugerð um mikilvæg málefni. Málefni sem ég tel rétt að við stöndum vörð um. Þá er ég fyrst og fremst að vísa í Schengen-samstarfið. Ríki Evrópu hafa í lengri tíma verið að reyna að finna út úr því vandamáli hvernig hægt er að bregðast við þeim aðstæðum sem leiðir af landfræðilegri legu ríkjanna, Ítalíu og Grikklands sérstaklega. Meginþungi hælisumsóknanna berst þangað inn og Evrópa hefur verið í þeirri vegferð að leysa úr þessum vanda síðastliðin tíu ár. Afleiðing þess eða alla vega þáttur í þeirri vegferð eru einmitt þessar reglugerðir sem við erum að taka upp hér að hluta sem ganga út á það að deila byrðunum með einhverjum sanngjarnari hætti en upphaflega Dyflinnarreglugerðin gerði ráð fyrir. Svo les maður stjórnarfrumvarpið og þetta er afgreitt í einni, tveimur línum. Menn áttuðu sig ekki á að hér væri nákvæmlega þetta að eiga sér stað. Ég átti orðastað við hæstv. dómsmálaráðherra hér þegar hún mælti fyrir málinu og þar fór hún einfaldlega með rangt mál, þ.e. að meginregla Dyflinnarsamstarfsins stæði óhögguð. Hafði hún beint eftir, með leyfi forseta: „Þessi regla stendur óhögguð að því leyti að það er ríki sem fer með umsjón, ber ábyrgð á henni.“

Það er bara ekki rétt. Þetta átti hæstv. dómsmálaráðherra að vita og það hjálpar ekki umræðunni hér í þinginu, né nefndarstarfinu, að farið sé með rangt mál hvað þetta varðar því að þarna erum við að innleiða reglugerðir sem miða að þessu, að dreifa aðeins byrðunum. Viðleitni Evrópusambandsins er niðurstaðan sem við erum að taka hér upp. Það er þá gert með því að það sé ekki bara það land þar sem hælisleitandi kom fyrst inn í eða skildi eftir sig fingraför heldur sé farið í einhvers konar dýpra mat. Hefur hann sérstök tengsl til einhverra annarra ríkja og væri þá eðlilegra að hælisumsókn hans yrði þar tekin fyrir? Á hann fjölskyldu í öðru ríki? Allt er þetta undir þeim reglum sem hér er verið að innleiða og fæst svo sem illa séð hvernig það samræmist svo yfirlýsingum hæstv. ráðherra um að spyrna gegn frekari fjölskyldusameiningum og herða regluverk hvað það varðar. En gott og vel, þetta er það sem við erum að ákveða hér. Ég og við í Sjálfstæðisflokknum leggjum ríka áherslu á það að við stöndum við alþjóðlegar skuldbindingar okkar, þar með auðvitað talið Schengen-samstarfið sem er mjög mikilvægt. Það skiptir máli að herða á þessum ytri landamærum og það er svo sannarlega verið að gera með þessu frumvarpi, en það hangir fleira á spýtunni og bara gott og vel. Ræðum það en látum ekki eins og það sé ekki fyrir hendi eins og gerist að mínu viti allt of oft í þessum þingsal.

Annað sem ég vil nefna sem kannski kemur til af skilningsleysi ráðuneytisins á efni frumvarpsins er að það er ekkert áhrifamat í frumvarpinu. Hvað verður þetta margt fólk sem mun fá úrlausn sinna hælisumsókna hér á landi samkvæmt þessum nýju reglum? Hver er breytingin? Ég veit það ekki. Ég veit ekki hver fjöldinn verður, hvort þetta verða fáir einstaklingar eða margir. Ég hreinlega þekki það ekki, en af hálfu ráðuneytisins var engin tilraun gerð til að leggja mat á það eða upplýsa þingheim um efni þess. Ég held að ég fari nú að ljúka máli mínu. Það hefði verið eðlilegra að þetta lægi allt saman fyrir þinginu. Ef ég man rétt sátum við hjá við 1. eða 2. umræðu þessa máls. Ég hefði viljað geta stutt það. Það hefði verið eðlilegra, sérstaklega þegar við erum einmitt talsmenn þess að standa við þessar skuldbindingar en við áttum erfitt með að gera það milli 2. og 3. umræðu.

Að endingu vil ég nefna að hér hefur verið orðræða í þingsal um frekari afleiðingar þessa skrefs sem hér er tekið. Ég deili þeim áhyggjum ekki, þannig að það sé sagt. Það leiðir einfaldlega bara af þessu Schengen-samstarfi og þessu samkomulagi sem við og Noregur gerðum við Evrópusambandið hvað það varðar að við þurfum að taka upp einstaka hluta þess. Ég vil líka nefna það til að friðþægja einhverja að þegar í nefndaráliti meiri hlutans er sagt að það standi ekki til að innleiða frekari gerðir Evrópusambandsins þá er það bara yfirlýsing þeirra sem sitja í nefndinni á hverjum tíma og bindur ekki hendur neins.

Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.