útlendingar og lögreglulög.
Frú forseti. Hér ræðum við frumvarp um útlendinga og lögreglulög. Ég vil bara þakka hér í upphafi hv. framsögumanni Grími Grímssyni fyrir ágætisframsögu og heiðarleika í sinni framgöngu allri. Þetta mál er marglaga. Það eru góðir þættir í því, mjög fínir, en aðrir sem hafa kannski fengið minna kastljós. Við höfum reyndar rætt það fyrr í þessum þingsal en þeir þættir skipta líka miklu máli og tengjast alls konar öðrum stórum þáttum, t.d. bara þessari þjóðaratkvæðagreiðslu núna í lok ágúst.
Hraðinn á málinu er verulegur. Við tókum það út núna í morgun og það er komið hingað með afbrigðum inn í þingsal. Við þurfum að standa við okkar skuldbindingar gagnvart Schengen-samkomulaginu. Ég get alveg tekið undir það, eins og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson, að við í Sjálfstæðisflokknum viljum standa við okkar skuldbindingar sem við höfum gert. Það er löngu tímabært að þetta hælisleitendakerfi í Evrópu verði skilvirkara og málsmeðferð dragist ekki á langinn, umsækjendur vinni með stjórnvöldum og ríkið geti með öruggum hætti staðfest það hverjir koma inn á Schengen-svæðið því eftir að komið er þangað inn er í raun bara frjáls för. Við vorum hér einmitt að samþykkja frumvarp um daginn um fullnustu saka, (GrímG: Refsinga.) refsinga — takk fyrir, hv. þm. Grímur Grímsson — sem þýðir það að þeir brotamenn sem eru hér sendir til síns heimalands eftir einn þriðja hluta afplánunar og eru innan Schengen-svæðisins geta þá í raun komið daginn eftir aftur til Íslands með flugi því að við vitum að þú ert enn innan ytri landamæranna. Þó að það sé endurkomubann á Ísland þá virkar Schengen þannig að menn geta farið hér bæði fram og til baka.
Ég ætla ekki að fara að ræða það frumvarp hér. Það skiptir máli í heildarsamhenginu að fólk geri sér alveg grein fyrir því að við erum að innleiða þrjár gerðir af tíu. Ég held að við Sjálfstæðismenn gerum ekki athugasemdir við þær þrjár gerðir. En síðan eru það hinar sjö og hv. þm. Grímur Grímsson fékk hér spurningu frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur hvort við hefðum verið nauðbeygð að samþykkja þær sjö gerðir líka ef við hefðum verið í Evrópusambandinu. Það liggur alveg ljóst fyrir að það er þannig og við sjáum það á þeim ríkjum sem eru að kvarta undan nokkrum af þessum sjö gerðum og skiljanlega, því að þær eru íþyngjandi. Það getur vel verið að þær teljist sanngjarnar að einhverju leyti en þær eru íþyngjandi og með leyfi frú forseta langar mig aðeins að vísa beint í frumvarpið varðandi þær gerðir sem ekki er verið að innleiða. Það er ekki talað um að innleiða þær en hér stendur, með leyfi frú forseta, um þessar sjö sem ekki er verið að innleiða að þær „verði teknar til frekari skoðunar á síðari stigum með hliðsjón af þróun regluverksins, reynslu annarra Evrópuríkja af innleiðingu samkomulagsins og mati á hagsmunum Íslands“.
Hér er verið að gefa upp boltann með það að hinar sjö verði innleiddar og það fer náttúrlega eftir því hver stýrir landinu á hverjum tíma hverjir hagsmunir Íslands eru. Við sjáum það bara í umræðunni. Það er fólk sem finnst hagsmunum Íslands vera best borgið í ESB og öðrum finnst það ekki. Ég ætla ekki endilega að setja mig í dómarasæti í því þó að ég taki einarða stöðu á móti því að það sé eitthvað verra fólk eða betra fólk. Það er bara bullandi pólitík í þessu. Það getur vel verið að það endi þannig að þessar sjö aukagerðir, sem töluverð óánægja hefur verið með í Evrópu, komi hingað yfir okkur. Þetta getum við kannski kallað salamíaðferðina, að byrja smátt og svo á endanum, má segja, þegar hesturinn er kominn út í miðja á þá snúum við ekki við, þá klárum við þetta bara. Það skiptir töluverðu máli að við áttum okkur á þessu.
Virðulegur forseti. Í greinargerðinni er vandinn. Honum er lýst. Vandi Evrópusambandsins og, með leyfi frú forseta, beint upp úr greinargerðinni: Óhóflegt álag á ríki við ytri landamæri Schengen, sérstaklega þau sem liggja að Miðjarðarhafi. Það liggur bara fyrir að landfræðilega eru þetta ríkin sem langflestir flóttamennirnir koma til. Þeir bera mestu byrðarnar og það er ekkert skrýtið að þeir kveinki sér undan því að Evrópa hefur kannski minna sinnt þessu og staðan er orðin þannig að ríki eins og Ítalía og Grikkland hleypa flóttamönnum eða hælisleitendum í gegnum ríkin. Þeir streyma síðan inn til Evrópu og eru komnir inn á Schengen-svæðið og birtast í ríkjum eins og á Íslandi og biðja um hæli. Þessi ríki, Ítalía, Grikkland og fleiri við Miðjarðarhafið, hafa óskað eftir því að hin ríkin taki meiri ábyrgð á þessu. Það er mikilvægt að átta sig á þessu og það kemur líka fram, með leyfi frú forseta: „samstöðu ríkja og ráðstafanir til jafnari dreifingar ábyrgðar á umsóknum um alþjóðlega vernd“. Hér er bara verið að segja að menn eru að kalla á jafnari dreifingu flóttamanna um álfuna.
Auðvitað höfum við á Íslandi verið með hlutfallslega marga flóttamenn þannig að það sé sagt líka. Það er þannig. Þessar gerðir er reyndar ekki verið að innleiða núna, en það verður að tala um þær því að þær eru þarna bara í kjölfarið. Jafnari dreifing er kannski bara fullkomlega sanngjörn en þá verður alla vega íslensk þjóð að átta sig á því hvað er mögulega í farvatninu. Hér er ég ekki að reyna að sá einhverjum fræjum óttans. Þetta stendur hérna í frumvarpinu, að hinar gerðirnar verði skoðaðar með tilliti til annarra Evrópuríkja og reynslu þeirra. Svo getur myndast alls konar pólitískur þrýstingur í þessum málum og það hverjir eru við völd í það og það sinn ákveða hvaða skref skuli stíga. Við þekkjum það alveg hér, alla vega það sem af er þessu þingi, þá hefur þessi 50,4% meiri hluti sagt bara opinskátt: Kjósum um þetta. Hættið að tala. Kjósum um þetta. Þetta hljómar svolítið eins og alræði. Þetta hefur margoft komið fram. Kjósum um þetta. Við vitum ekki nákvæmlega hvað felst í þessu, alla vega ekki við í stjórnarandstöðunni. Vonandi að almenningur hugsi vel um þetta því að það er ábyrgð okkar allra sem búum í lýðræðissamfélagi að þrátt fyrir að við séum með fulltrúa okkar hér á þingi að við reynum að fylgjast með umræðunni og taka þátt í henni á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum og svo bara á kaffistofum landsins.
Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra. Ég vildi bara koma hér upp og aðeins að viðra þessar pælingar og þær mögulegu áhyggjur sem maður hefur af næstu sjö gerðum sem hafa valdið, svo ég segi það bara aftur, frú forseti, ólgu í ýmsum ríkjum Evrópu. Ríki Evrópu sem hafa tekið harða stöðu gegn því að taka við fleiri flóttamönnum. Þá er kominn ákveðinn samstöðusjóður þar sem menn þurfa að greiða í sjóðinn til að taka ekki við flóttamönnum og samkvæmt mínum upplýsingum eru það um 20.000 evrur á hvern flóttamann. En til að gæta fyllstu sanngirni hefðum við Íslendingar mögulega getað fengið greitt af því að við erum með það marga flóttamenn, þannig að ég er ekki hér í einhverjum pólitískum skollaleik að reyna að höggva í meiri hlutann. Þetta er bara ákveðinn raunveruleiki sem við verðum að geta horfst í augu við. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.