157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[13:31]
Horfa

Snorri Másson (M):

Frú forseti. Ég hef engar hugmyndir um að setja hér á langar tölur. Ég ætlaði bara að lýsa rétt svo ákveðnum atriðum málsins vegna þess að hér hefur verið umræða um þær breytingar eða þau sjónarmið sem eru viðruð í framhaldsnefndaráliti á milli 2. og 3. umræðu.

Ég ítreka og legg áherslu á að þótt þetta mál sé of seint fram komið eins og stjórnarliðar hafa gengist við, þannig að tímapressan hefur verið óeðlileg í þessu máli, eru engu að síður ábyrgir flokkar í stjórnarandstöðu sem hafa stuðlað að framgangi málsins, fallið frá frávísunartillögu og öðru, þannig að það hefur ekki skort á samstarfsvilja gagnvart málinu af okkar hálfu. Engu að síður voru hérna veigamiklar athugasemdir sem lutu að skuldbindingum eða ádrætti í greinargerð frumvarpsins um að það stæði til í framhaldi af samþykkt frumvarpsins að fara í frekari aðlögun, mögulega samkvæmt ákveðnum skilyrðum, að verndarsamkomulaginu, blessunarlega. Það er gott að það hefur verið áréttað í þessu framhaldsnefndaráliti sem núna liggur fyrir þinginu að í þessu felist engin stefnumörkun af þeim toga og það tel ég bæta málið töluvert af hálfu ríkisstjórnarinnar. Ég veit ekki alveg hvaða furðu það vekur hjá hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni. Mér finnst fara betur á því að hnykkt sé á því í þessu áliti að ekki felist í því stefnumörkun út frá sjónarmiði meiri hluta allsherjarnefndar með samþykkt þessa frumvarps að fara í frekari aðlögun að verndarsamkomulagi Evrópusambandsins. Svo geri ég líka ákveðinn ágreining við hv. þm. Sigurð Örn Hilmarsson að það er sannarlega ástæða til að hafa áhyggjur af restinni af verndarsamkomulagi Evrópusambandsins. Reynslan innan Evrópusambandsins af hælismálum hefur iðulega verið þannig að þau ríki sem reyna að neyta fullveldisins til þess að verjast straumnum fá oft bágt fyrir af hálfu Evrópusambandsins. Það er því mekaník og dýnamík og ástand sem er sannarlega ástæða til að fara inn í af fyllstu varúð.

Að því sögðu kom líka áhugavert sjónarmið fram hérna í þessari umræðu að hv. framsögumaður málsins taldi að frekari aðlögun eða frekari þættir verndarsamkomulagsins samrýmdust ekki hagsmunum Íslands. Það verður áhugaverð umræða til að taka í framhaldinu, enda stendur hér til að greiða um það atkvæði hvort við förum inn í bandalagið, Evrópusambandið, og þar með þyrftum við líklega að taka upp restina sem menn hafa þó lýst hér yfir að samræmist ekki hagsmunum Íslands. Þetta hefur verið fróðlegt mál að öðru leyti en auðvitað eru í því ákveðnar skuldbindingar út frá Schengen. Þetta er auðvitað Schengen-mál öðrum þræði þótt ríkisstjórnin hafi þennan áhuga á að kalla þetta Evrópusambandsmál. Það er sök sér en út frá því að það eru í þessu ákveðnar skuldbindingar sem sannarlega þarf að uppfylla og hér hefur verið fullyrt að þetta dragi ekki úr möguleikum okkar til endursendinga, það hefur verið fullyrt, sem er mjög mikilvæg fullyrðing. Þá er engin ástæða til þess að Miðflokkurinn muni standa gegn þessu máli eða þvælast fyrir því á þessu stigi máls.