157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[13:34]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Bara örstutt í tilefni orða hv. þm. Snorra Mássonar um að það hafi valdið einhverjum misskilningi. Ég var ekki að lýsa því yfir að ég hefði engar áhyggjur af einhverri frekari innleiðingu heldur hitt, sem sagt um meðferð þessa máls, að út af fyrir sig fannst mér það ekki kalla á einhverja frekari innleiðingu. Ég skildi bara þarna á milli. Sjónarmið annarra í minni hlutanum hafa einmitt verið frekar á þessa leið og þá er þessi yfirlýsing komin hér fram skýrt í afstöðu meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar. Ég var kannski frekar að vekja athygli á þessu tvennu, annars vegar að með frumvarpinu erum við hér að innleiða eitthvað sem okkur ber að gera, hluta reglugerðar Evrópusambandsins vegna skuldbindinga okkar í Schengen-samstarfinu, og svo hins vegar að þetta er einhvers konar viljayfirlýsing núverandi meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar um að ekki standi til að gera meira. Þingið getur svo auðvitað tekið aðrar ákvarðanir hvenær sem er, hvort sem það verður þessi ríkisstjórn eða einhver önnur.