útlendingar og lögreglulög.
Virðulegur forseti. Það er ágætt að hv. þingmaður geri grein fyrir því í hverju þessi afstaða fólst. Ég ítreka bara að mér finnst það þó vera einhvers virði að þessi meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar á vegum þessarar ríkisstjórnar staðfesti að það sé ekki unnið að því í framhaldi þessa máls að fara í þær gerðir verndarsamkomulags Evrópusambandsins sem ekki eru skuldbindandi. Það hvort þetta sé bindandi, ja, þetta er alla vega yfirlýsing eins bindandi og nefndarálit geta orðið. Það er auðvitað stór spurning í lagaskýringarfræðum sem hv. þingmaður veit örugglega betur svör við en sá sem hér stendur.