157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

brottfararstöð.

230. mál
[13:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Grímur Grímsson) (V):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti við 3. umræðu um frumvarp til laga um brottfararstöð. Nefndin hefur fjallað um málið að nýju milli 2. og 3. umræðu. Líkt og fram hefur komið við umfjöllun um málið, og var m.a. rakið í nefndaráliti meiri hlutans við 2. umræðu, sem finna má á þingskjali 1244, hefur ítarlega verið fjallað um stöðu fjölskyldna með börn á brottfararstöð og lagðar fram breytingartillögur hvað það varðar. Frumvarpið hefur því að lokinni 2. umræðu tekið breytingum sem varða það m.a. að fjölskyldum með börn skuli séð fyrir sérstökum vistarverum. Nefndin hefur fjallað nánar um það hvort áorðnar breytingar á frumvarpinu tryggi nægilega vel fullnægjandi friðhelgi barna með því að kveða á um að þeim verði séð fyrir húsnæði sem er eingöngu ætlað fjölskyldum með börn. Með hliðsjón af þeirri umfjöllun leggur meiri hlutinn til frekari breytingar á frumvarpinu hvað það varðar sem og um að tryggja betri eftirfylgni með framkvæmd laganna með skýrslugjöf ráðherra til Alþingis.

Meiri hlutinn leggur til frekari breytingar á frumvarpinu við 3. umræðu. Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar er varða aðskildar vistarverur fyrir fjölskyldur með börn. Í nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar við 2. umræðu voru lagðar til og samþykktar breytingar á 4. mgr. 7. gr. frumvarpsins varðandi aðskildar vistarverur fyrir fjölskyldur með börn. Líkt og fram kemur í álitinu voru breytingarnar lagðar til með það að markmiði að skerpa á því að í þeim undantekningartilvikum sem þörf verður á að vista fjölskyldur með börn á brottfararstöð, sem lokaúrræði og þegar brýna nauðsyn ber til, þá verði það aðeins gert í sérstöku húsnæði sem verður eingöngu ætlað þeim og algjörlega aðskilið öðrum vistarverum fyrir einstaklinga. Til að tryggja friðhelgi og vernd einkalífs fjölskyldna með börn er kveðið á um að þeim skuli útvega sérstakar vistarverur innan fjölskylduhúsnæðis þannig að hver fjölskylda hafi eigið rými, að lágmarki svefnrými. Þó er vísað til þess að ákvæðið myndi ekki útiloka að fleiri en ein fjölskylda gæti deilt sameiginlegri aðstöðu, svo sem eldunaraðstöðu, tómstundarými og þess háttar.

Í nefndaráliti 1. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar við 2. umræðu, á þingskjali 1248, var einnig lögð áhersla á að tryggja hagsmuni barna á brottfararstöð í hvívetna. Til að stuðla enn betur að því markmiði var lagt til að mælt yrði fyrir um það í lögum um brottfararstöð að fjölskyldum með börn verði að lágmarki úthlutað sínu eigin afmarkaða svefnrými, tómstundasvæði innan- og utandyra, auk salernis og eldunaraðstöðu.

Nefndin hefur fjallað nánar um málið að lokinni 2. umræðu og er sammála því að það megi taka enn betur mið af þörfum barna og tryggja að fjölskyldur með börn dvelji í umhverfi sem stuðlar að viðunandi og mannsæmandi fjölskyldulífi á meðan á stuttri vistun stendur. Í því ljósi leggur meiri hlutinn til breytingu sem var lögð fram af 1. minni hluta á þskj. 1248 við 2. umræðu. 3. töluliður, en var kölluð aftur og hefur því ekki komið til atkvæðagreiðslu í þingsal.

Til viðbótar leggur meiri hlutinn til breytingu á 10. gr. frumvarpsins um neyðarástand. Í skýringu við ákvæðið í greinargerð með frumvarpinu kemur skýrt fram að ekki skuli túlka ákvæðið svo að það heimili stjórnvöldum að víkja frá almennu skyldu sinni til að grípa til allra viðeigandi ráðstafana, almennra eða sérstakra, til að tryggja efndir á skyldum sínum samkvæmt ákvæðum frumvarpsins og brottvísunartilskipunar Evrópusambandsins en ákvæðið byggist á 18. gr. tilskipunarinnar. Heimildin á aðeins við ef um er að ræða tímabundið og ófyrirséð ástand, svo sem skyndilega fjölgun útlendinga eða umsækjenda um alþjóðlega vernd sem fer verulega fram úr getu stjórnvalda til að tryggja þeim vistun á brottfararstöð. Beiting ákvæðisins mun verða háð mati á aðstæðum hverju sinni og skal leitast við að beita ákvæðinu í sem skemmstan tíma.

Meiri hlutinn leggur til að kveðið verði á um að óheimilt verði að víkja frá ákvæði 4. mgr. 7. gr. um að tryggja aðskildar vistarverur fyrir fjölskyldur með börn þrátt fyrir neyðarástand skv. 10. gr. Þá er lögð til breyting er varðar skýrslu ráðherra um framkvæmd laga um brottfararstöð. Í ljósi þess að um er að ræða nýtt úrræði hér á landi sem varðar grundvallarmannréttindi þeirra einstaklinga sem munu verða vistaðir á brottfararstöð tók nefndin til nánari umfjöllunar tillögu í nefndaráliti 2. minni hluta allsherjar- og menntamálanefndar við 2. umræðu á þskj. 1249. Þar var lagt til að ráðherra skyldi innan 12 mánaða frá því að brottfararstöð tekur til starfa leggja fyrir Alþingi skýrslu um framkvæmd laganna auk þess sem nánar er kveðið á um hvað skuli koma fram í skýrslunni. Eftir nánari umfjöllun tekur meiri hlutinn undir það að æskilegt sé að kveða á um lögbundna eftirfylgni með framkvæmd laganna svo að ráðherra verði falið að upplýsa Alþingi að tilteknum tíma liðnum eftir að brottfararstöð tekur til starfa um framkvæmdina og hvernig hafi reynt á íþyngjandi heimildir á grundvelli laganna. Líkt og fram hefur komið við umfjöllun um málið liggur fyrir að gert sé ráð fyrir að brottfararstöð verði komið upp á Suðurnesjum en enn liggur ekki fyrir nákvæm útfærsla eða hvar úrræðið verði staðsett. Meiri hlutinn undirstrikar nauðsyn þess að gætt verði að virku samráði við viðkomandi sveitarfélög á Suðurnesjum hvað það varðar.

Meiri hlutinn telur mikilvægt að Alþingi sé upplýst um framvindu málsins og geti þá jafnframt brugðist við ef þörf krefur þegar frekari reynsla verður komin á löggjöfina eftir að brottfararstöð tekur til starfa eftir 1. desember 2026.

Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hlutans rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir og Sandra Sigurðardóttir.

Frú forseti. Að lokum langar mig til að fara hér yfir stuttan kafla úr nefndaráliti meiri hlutans við 2. umræðu. Þar segir, með leyfi forseta:

„Í erindi mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins er bent á að Mannréttindadómstóll Evrópu hafi ítrekað undirstrikað sérstaklega viðkvæma stöðu barna vegna innflytjendastöðu þeirra. Dómstóllinn hefur vísað til þess að forðast skuli frelsissviptingu barna sem skuli aðeins beitt sem lokaúrræði ef fyrir liggur, á grundvelli einstaklingsmats, að engin vægari úrræði komi að gagni og það sé algjörlega nauðsynlegt á grundvelli meðalhófs.“

Nákvæmlega þetta höfum við gert. Við höfum tekið frumvarpið og reynt að sníða af því agnúa þannig að um sé að ræða algjört neyðarúrræði þegar önnur úrræði duga ekki til til að framfylgja löglegum ákvörðunum stjórnvalda.