157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

brottfararstöð.

230. mál
[13:44]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. framsögumanni, Grími Grímssyni, fyrir hans innlegg í þetta mál. Það er ánægjulegt að tekið var tillit til hluta þeirra athugasemda sem við höfðum um málið og það er verið að bæta inn skýrslugjöf varðandi framvindu málsins, sem er bara mjög jákvætt. En þegar kemur að frelsissviptingu barna var hins vegar lítið sem ekkert gert. Hér er ítrekað verið að vísa til reynslu Noregs í þessum málum þegar kemur að brottfararstöðum. Í Noregi er einmitt sérstök nefnd sem hefur eftirlit með þvinguðum brottvísunum og brottfararstöðum. Þessi nefnd gaf út skýrslu árið 2024. Þar kemur fram að nefndin telur rétt að hætt verði að frelsissvipta börn á brottfararstað í Noregi. Það á að hætta því. Nefndin sem hefur eftirlit með lögunum leggur til að það eigi að hætta að frelsissvipta börn. Þetta kemur einnig fram í lokaathugasemd barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna frá 2025 og beinir nefndin þeim tilmælum til Noregs að banna frelsissviptingu barna í tengslum við útlendingamál. Þetta er fyrirmyndin sem við ætlum að hafa og leggja fyrir okkur þegar við erum að setja lög á Íslandi og við teljum að þannig sé hagsmuna barnanna gætt þegar kemur að brottfararstöð.

Mig langar að spyrja hv. framsögumann: Af hverju var ekki meira litið til Danmerkur þegar kemur að brottfararstöð þar sem börn eru ekki frelsissvipt? Og af hverju eigum við að fara þessa vegferð þegar ansi mörg samtök hafa varað við þessu? Nefnd sem hefur eftirlit með þessum lögum og þessum brottfararstöðum í Noregi er að mæla gegn þessu og er að leggja til að þetta verði tekið til baka. Af hverju erum við að stíga þessi skref hér á Íslandi?