brottfararstöð.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar andsvar. Ég taldi mig reyndar hafa svarað því nokkuð afdráttarlaust í ræðu minni hvers vegna við ákváðum að hafa þetta með þessum hætti. Og í morgun, undir liðnum störf þingsins, ræddi ég líka um brottfararstöð. Þar ræddi ég þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. Okkur ber, samkvæmt ákvæðum ýmissa mannréttindasáttmála sem við höfum undirgengist, að gæta fyllilega að mannúð þegar kemur að móttöku flóttamanna en okkur ber líka að gæta að því að við uppfyllum þær kröfur sem gerðar eru til okkar samkvæmt Schengen-samkomulaginu og löggjöf þar að lútandi. Þá er það líka þannig að við þurfum að hafa á að skipa úrræði, lokaúrræði, til að framfylgja löglegum ákvörðunum yfirvalda. Þegar þetta er allt saman vegið saman þá er það niðurstaðan að við verðum að hafa á að skipa úrræði til þess að framfylgja þessum ákvörðunum að teknu tilliti til þeirra krafna sem gerðar eru til okkar. Síðan vísar hv. þingmaður til Noregs og ég hef svo sem ekki neinar upplýsingar um þessa nefnd né hef ég einhverjar upplýsingar um það hvernig yfirvöld í Noregi munu bregðast við í þeim efnum. Mér finnst mjög eðlilegt, og ég hef mikinn skilning á því, að þau mannréttindasamtök sem bera hag barna fyrir brjósti leggi skýrar áherslur á að þeim finnist ekki ástæða til að frelsissvipta börn. Það sem við stöndum frammi fyrir er að reyna að vega og meta þær kröfur sem til okkar eru gerðar og við komumst að niðurstöðu. Þetta var okkar niðurstaða.