157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

brottfararstöð.

230. mál
[15:35]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Stuttlega í lok yfirferðar þessa máls, sem snýst í kjarnanum um það fólk sem hefur fengið synjun um alþjóðlega vernd, á að fara af landi brott en vill ekki virða ákvörðun stjórnvalda, þá vil ég nefna hér hið augljósa, að á stjórnvöldum hvílir í þessu máli tvíþætt skylda; skuldbindingar okkar í útlendingamálum samkvæmt Schengen og mannréttindaskuldbindingar gagnvart þessu fólki sem ekki vill yfirgefa landið. Ég vil líka nefna að öll Norðurlöndin hafa farið þessa sömu leið. Það hafa Schengen-ríkin líka gert. Allt eru þetta ríki, þegar við horfum til Norðurlandanna, sem eru framarlega í mannréttindamálum og raunar á heimsvísu. Ísland hefur sætt gagnrýni fyrir það árum saman að eiga ekki þetta úrræði. Ekkert Norðurlandanna samþykkir heldur allar umsóknir frá fólki með börn og ekkert þeirra undanskilur alveg fólk með börn frá þessum úrræðum. Við leggjum okkur fram í þessu erfiða máli við að beita alltaf vægustu mögulegu aðferð. Við beitum þessu úrræði ekki fyrr en annað hefur verið reynt og ekki dugað til. Ég vil að lokum þakka allsherjarnefnd (Forseti hringir.) kærlega fyrir góð störf sín því að þetta mál er erfitt, sérstaklega formanni nefndarinnar og framsögumanni málsins.