157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

brottfararstöð.

230. mál
[15:38]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Við erum að afgreiða hér mjög mikilvægt mál í, getum við sagt, útlendingamálum þjóðarinnar, mál sem hefur verið lengi til umræðu. Hæstv. dómsmálaráðherra fór ágætlega yfir rökstuðning áðan fyrir því af hverju þetta er nauðsynlegt, hvernig þessu er beitt. Það hafa engar ytri aðstæður á undanförnum árum breyst. Ég vil því fagna alveg sérstaklega þeim sinnaskiptum sem birtast hér í orðræðu hæstv. ráðherra og fleiri forystumanna ríkisstjórnarinnar, Samfylkingar og Viðreisnar alveg sérstaklega. Ég fagna þeim sinnaskiptum sem hafa orðið á þeim bæ en þau hér á fyrri tímum stóðu á kantinum og gagnrýndu og hrópuðu á hliðarlínunni. En þegar þau þurftu að horfast í augu við vandamálin sjálf þá áttuðu þau sig á því að þetta þurfti að leysa og við tökum þátt í því svo innilega hér í minni hlutanum að styðja þetta góða mál í gegn.