157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

brottfararstöð.

230. mál
[15:40]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við meðferð málsins í nefndinni voru gerðar mikilvægar breytingar til að styrkja stöðu barna og fjölskyldna sem kunna að dvelja í brottfararstöð. Það breytir ekki þeirri staðreynd að vistun barna er viðkvæmt og erfitt úrræði sem aðeins á að koma til greina í algerum undantekningartilvikum. Okkur ber skylda til að tryggja að aðstæður barnanna séu eins öruggar og barnvænar og kostur er. Skýrt er kveðið á um að vistun barna skuli aðeins vera síðasta úrræði, að gerðar séu ríkari kröfur til mats á nauðsyn vistunar barna en fullorðinna og vistunartími barna sé styttri og að fylgdarlaus börn verði aldrei vistuð í brottfararstöð. Þessar breytingar leysa alls ekki úr öllum áhyggjum sem fram hafa komið og fylgjast þarf vel með hvernig úrræðið reynist og áhrifum þess á börn og fjölskyldur þeirra. En nefndin hlustaði og lagði sig fram um að bæta aðstæður þannig að hagsmunir barnsins verði hafðir að leiðarljósi við framkvæmd laganna.