157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

brottfararstöð.

230. mál
[15:41]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við greiðum nú atkvæði um þetta lagafrumvarp um brottfararstöð. Ég vil segja að þetta er úrræði sem er nauðsynlegt fyrir okkur eiga til en ég vona að það komist sjaldan eða aldrei til þess að það þurfi að vista fjölskyldur með börn í brottfararstöð á Íslandi. Ég trúi því að í langflestum tilvikum sé hægt að ná sömu niðurstöðu án þess að vista fjölskyldur með börn í brottfararstöð heldur beita vægari úrræðum. Það verður einmitt lögfest, verði það frumvarp sem við greiðum atkvæði um að lögum. Í umræðum hér í þingsal hefur verið vísað til reglna í Danmörku þar sem börn séu ekki vistuð í brottfararstöð. Ég þekki ekki til þessara reglna í Danmörku en tel að frumvarpið, eins og það er nú úr garði gert, leiði til einmitt þeirrar niðurstöðu sem vísað er til; að börn séu ekki vistuð í brottfararstöð nema í algjörum undantekningartilvikum. Þrátt fyrir að úrræðið sé til þá verður því ekki beitt, eins og áður segir, nema í algjörum undantekningar- og jaðartilvikum.