brottfararstöð.
Herra forseti. Eins og ég nefndi í ræðu minni hérna áðan þá er hér á ferðinni enn eitt málið sem er áminning um að stjórnvöld á Íslandi skilja hvorki umfang né eðli þess vanda sem við er að eiga. Hér er enn á ný verið að bregðast við með hætti sem er til þess fallinn að viðhalda vandanum frekar en að taka á honum, frekar en að bregðast við á landamærunum og ná stjórn á þeim og því hverjir koma hingað og hverjir geta sótt hér um hæli. Ég óttast að með þessu sé verið að reisa hótel, gistiheimili fyrir ógæfumenn heimsins því að þeir sem þarna lenda hafa brotið lög, hafa neitað að verða við skipunum, kröfum, jafnvel beiðnum um að flytja gegn greiðslu. En líklega er ekki um annað að ræða að sinni frá þessari hæstv. ríkisstjórn og því ekki hægt að leggjast gegn málinu. (Forseti hringir.) En hvers vegna þarf alltaf að vinna þessi mál svona illa?