brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Sjálfstæðisflokkurinn styður þetta mál hér í dag þrátt fyrir að við hefðum viljað sjá breytingar gerðar á málinu sem allar voru felldar hér. Til að mynda var það fellt sem sneri að því að það eru engar kröfur gerðar til starfsmanna brottfararstöðvarinnar um t.d. hreint sakavottorð eða bakgrunnsskoðun líkt og er í öðrum störfum þar sem unnið er með börnum. Sömuleiðis geri ég athugasemd við það að þetta er frelsissvipting, þetta er lokað úrræði og þarna munu einstaklingar dvelja sem neita allri samvinnu við stjórnvöld, ætla ekki að hlíta íslenskum lögum eða reglum. Af hverju ætti fólk þá að hlíta þeim reglum sem þarna eru í þessu húsnæði? Þess vegna tel ég einsýnt að ríkisstjórnarflokkarnir (Forseti hringir.) hefðu átt að gera breytingar og sjá til þess að þeir starfsmenn sem þarna starfa hafi valdbeitingarheimildir til að koma skikki á hlutina ef þannig ber undir. (Forseti hringir.) Mér þykir miður að þær tillögur okkar Sjálfstæðismanna hafi verið felldar hér en að öðru leyti styðjum við málið.