brottfararstöð.
Herra forseti. Í stuttri athugasemd um atkvæðagreiðslu næ ég ekki að rekja alla þá galla og þær hættur sem fylgja þessu máli. Ég vísa í fyrri ræður mínar um málið hvað það varðar en vil þó sérstaklega nefna þá umræðu sem hefur átt sér stað hérna um börn. Ef viljinn stendur raunverulega til þess að vernda börn þá þarf þingið að setja lög sem hafa raunverulega þau áhrif, ekki pakka þeim í umbúðir barnaverndar heldur meta raunveruleg áhrif málsins. Hér er til að mynda um það að ræða að verið er að afgreiða þetta mál án þess að á sama tíma sé komist að niðurstöðu um eða því svarað hverjir eru raunverulega börn. Hér koma menn sem eru miklu eldri en 18 ára og segjast vera börn. Á sama tíma segir hv. framsögumaður málsins, sem hefur reyndar svarað betur fyrir þetta mál en flestir þeirra (Forseti hringir.) sem styðja það úr meiri hlutanum, að það megi senda börn með forráðamönnum í sumarbústað úti í skógi. Verðum við þá ekki að vita (Forseti hringir.) hvort raunverulega sé um barn viðkomandi að ræða? Því að það eru aldeilis dæmi um það að svo sé ekki.