157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

brottfararstöð.

230. mál
[15:50]
Horfa

Snorri Másson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vildi koma hér upp og ítreka stuttlega að Miðflokkurinn er ekki að leggjast gegn þessu máli eða að gera athugasemd við einhverja sérstaka þætti málsins með því að sitja hjá, heldur mun frekar að benda á pólitíska samhengið hér, að við ættum ekki að þurfa þetta milljarðaúrræði. Við þurftum ekki þetta milljarðaúrræði hér fyrir tíu eða tuttugu árum. Hvað breyttist? Útlendingalögin breyttust. Hvernig breytum við ástandinu? Við breytum því með því að breyta útlendingalögunum, ekki með því að bæta milljarðaúrræðum ofan á milljarðaúrræðin til að bregðast við vandanum eftir að við höfum sjálf skapað hann með umgjörð okkar. Það er hin pólitíska athugasemd við þá leið sem hér er farin.