brottfararstöð.
Virðulegi forseti. Ég styð þetta mál. Hér erum við að stíga jákvætt skref. Við erum að stíga skref í þá átt að uppfylla skyldur okkar í Schengen-samstarfinu sem okkur ber að gera. Ég tel að þetta úrræði sýni meiri mannúð heldur en hitt. Við erum hér að eiga við einstaklinga sem hafna allri samvinnu við stjórnvöld. Við skulum vona að þetta verði nýtt í undantekningartilfellum og við skulum sömuleiðis vona að þarna verði aldrei fjölskyldur vistaðar eða börn. En ef svo ber undir þá, eins og ég sagði í ræðu minni hér fyrr í dag, tel ég það meira öryggi fyrir börn heldur en að vera hér einhvers staðar úti í samfélaginu og ef þau veikjast eða ef eitthvað kemur upp á þá er ekki farið til læknis eða annað vegna þess að fólk er í felum. Þannig að ég segi já. Mér finnst jákvætt skref stigið hér og ég fagna þeirri umbreytingu sem er að eiga sér stað í þessum sal.