157. löggjafarþing — 121. fundur, 9. júní 2026.
brottfararstöð.
230. mál
Virðulegur forseti. Ég fagna því að þetta frumvarp sé loksins komið fram. Ég fagna þeim sinnaskiptum sem hafa orðið hér hjá sérstaklega hv. þingmönnum Viðreisnar og Samfylkingar. En ég verð að segja að það er miður að það hafi ekki verið horft til þeirra breytingartillagna sem komu frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, sérstaklega þess sem snýr að þeim kröfum sem við viljum gera til starfsfólks brottfararstöðvar. En hvað sem því líður þá styð ég þetta mál og segi já.