brottfararstöð.
Virðulegur forseti. Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson þarf ekkert að undra sig á því að Miðflokkurinn taki heildarsýn útlendingamála til umfjöllunar í stað þess að styðja athugasemdalaust við ýmiss konar plástra sem eru þó að vísu, eins og við höfum tekið fram með þessari umræðu, illnauðsynlegir í því núverandi ástandi útlendingamála sem uppi er þó að vandi málsins, sem hér verður ólíklegra að menn taki á, séu sjálf útlendingalögin sem þarf að laga. Það er punkturinn sem við komum á framfæri. Auk þess höfum við miklar áhyggjur af framkvæmdinni í þessu máli, að þetta geti undið upp á sig. Ég hvet á þessu stigi stjórnvöld eindregið til þess að nota öll önnur úrræði sem til eru til að framfylgja lögum en að búa þarna til nýjan geymslustað til lengri tíma en lagt er upp með, t.d. að nýta ökklabönd, sem er ný tækni sem lofar góðu og er miklu ódýrari en þetta úrræði. Að öðru leyti greiði ég ekki atkvæði í málinu en heiti stjórnvöldum stuðningi við að reyna að vanda eins vel til verka og mögulegt er í þessu óyndisúrræði sem verið er að koma á fót.