157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

brottfararstöð.

230. mál
[16:05]
Horfa

Árni Helgason (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að taka undir það sem fram hefur komið hér í dag að ég fagna því að þetta mál sé að klárast. Þetta er mikilvægt mál sem hefur verið flutt hér á mörgum þingum, oft að vísu undir mikilli gagnrýni. En ég held að við hljótum öll að átta okkur á því að það er mikill áfangi að klára þetta mál og ég fagna því að við séum að því. Rifjum aðeins upp ástæðurnar. Þær eru þær að fólk, sem hefur farið í gegnum lögmæta málsmeðferð stjórnvalda, lætur sig því miður hverfa þegar kemur að því að klára ferlið og fylgja fólki úr landi. Eins og fram kemur í frumvarpinu þá eru þetta ekki eitt eða tvö eða þrjú dæmi heldur er talað um að yfir tveggja ára tímabil séu þetta um 180 einstaklingar. Þetta er mál sem við þurfum að taka alvarlega og það þykir engum neitt sérstaklega skemmtilegt að samþykkja svona úrræði en við þurfum að nálgast þetta mál af ábyrgð. Sjálfstæðisflokkurinn segir já í dag. Ég held að það sé líka ástæða til að þakka þeim sem hafa flutt þetta mál í gegnum tíðina, oft við alveg ótrúlegar (Gripið fram í.) — að tala fyrir þessu máli, að hafa kynnt þetta mál. Það kannast allir við málverkin og myndirnar af talsmönnum málsins og málaflokksins sem voru kynntar á sínum tíma. En ég vil að því sögðu líka þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að taka málið alla leið. Þingmaðurinn segir já.

(Forseti (IngÞ): Forseti biður hv. þingmenn um að gefa þeim þingmanni sem er í ræðustól hljóð.)