157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:09]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að fá að komast loks í umræðu um samgönguáætlun, sem hefur verið áhugaverð. Þingmenn af landsbyggðinni hafa látið að sér kveða eins og endranær. Þó hafa einhverjir þingmenn Reykjavíkur náð að komast í ræðu. Þetta er fyrsta ræða mín og ágætt að fá að tala aðeins um hagsmuni Reykvíkinga. Þeir eru oft og tíðum aðrir en hagsmunir landsbyggðarinnar þótt við eigum öll þá sameiginlegu hagsmuni að vilja og þurfa að hafa vegasamgöngur og innviði sem tengjast vegasamgöngum og samgöngum yfirleitt, líka hafnir og flugvelli, í sem bestu ásigkomulagi.

Virðulegi forseti. Við Reykvíkingar viljum síst útiloka bættar samgöngur úti á landi. Ég legg áherslu á Reykjavík í þessu sambandi en ekki höfuðborgarsvæðið eins og mönnum er tamt að tala um í þessum efnum, þ.e. nágrannasveitarfélög Reykjavíkur; Kópavog, Hafnarfjörð, Garðabæ, Mosfellsbæ og jafnvel Seltjarnarnes þótt það liggi oft óbætt hjá garði í þessum efnum. Ég nefni Reykjavík sérstaklega vegna þess að hagsmunir Reykvíkinga eru ekki endilega í beinu samhengi við hagsmuni nágrannasveitarfélaga. Það hefur ekki verið svo undanfarinn áratug eða svo, jafnvel í tvo áratugi. Við Reykvíkingum hefur blasað framkvæmdaleysi í meira en áratug eða hátt í tvo áratugi. Það hófst með borgarstjórnarmeirihluta vinstri flokkanna, R-listans, og í framhaldi af því vinstri flokka sem gerðu samkomulag um það við ríkisvaldið að Alþingi og fjárveitingavaldið myndu ekki veita fé í vegasamgöngur í Reykjavík. Hún var ótrúleg áhersla þessa borgarstjórnarmeirihluta á þeim tíma að hafa hagsmuni af Reykvíkingum með þeim hætti.

Þess í stað var samið um uppbyggingu almenningssamgangna og um árlegt fjárframlag, verulega aukið fjármagn, til strætisvagna, sem þá hétu, og voru byggðasamlag eða var fljótlega eftir það steypt saman í eitthvert byggðasamlag. Samið var við ríkissjóð um aukið fé í það. Það var mikið fé á þeim tíma, hátt í milljarður króna á ári, sem fór í það að efla strætisvagna. Árangurinn af því var kannski að einhverjir strætisvagnar voru endurnýjaðir. Strætisvagnaleiðir voru endurskoðaðar aftur og aftur, svo mjög á tímabili að breyttar leiðir og númer á strætisvögnum ærðu óstöðugan, þannig að þeir sem þó notuðu almenningssamgöngur gátu um tíma vart stólað á það kerfi.

Það var samkomulag um þetta í áratug og við blasir ófremdarástand í Reykjavík þegar kemur að bílaumferð. Við stöndum frammi fyrir því og breytum því ekki nema með manngerðum aðgerðum sem taka langan tíma. Landslag í Reykjavík er þannig, eins og menn þekkja, að erfitt er að fjölga umferðaræðum. Það er hins vegar óhjákvæmilegt að leita leiða til þess. Ég segi að það sé erfitt en það er ekki ómögulegt. Lega landsins er þannig að huga þarf að samgöngum í því ljósi.

Hér hefur komið til umræðu að samgönguáætlun sem liggur fyrir þinginu kveður á um viðamiklar framkvæmdir, samt örfáar í Reykjavík, en þær falla flestar undir samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Það er enn eitt furðusamkomulagið sem borgaryfirvöld ásamt bæjaryfirvöldum í nágrannasveitarfélögum tóku sér fyrir hendur með ríkisstjórn á þeim tíma og ríkissjóði, alveg fram hjá Alþingi. Það er gott að halda því til haga. Það þarf að árétta að samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins er ekki eitthvert plagg eða erindi sem hefur verið til afgreiðslu í þinginu heldur er hann samkomulag, eins og það er kallað í atvinnulífinu og fyrirtækjarekstri, eða einhvers konar viljayfirlýsing borgaryfirvalda, bæjarfélaga í kring og ríkissjóðs um að fara í tilteknar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu, enda heitir hann samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.

Að mínu viti er Reykjavík og hagsmunir Reykvíkinga að miklu leyti fyrir borð bornir í þessum samgöngusáttmála eins og hann var þegar ritað var undir hann fyrst árið 2019. Síðan hefur samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins verið endurnýjaður. Það kom ekki til af góðu. Það kom til vegna þess að auðvitað gátu menn ekki þrætt fyrir það sem á var bent í upphafi, að þær hugmyndir sem fólust í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins kölluðu á útgjöld langt umfram það sem var þó skjalfest og menn höfðu hugmyndir um. Þeir gerðu samkomulagið. Ekki aðeins það heldur kom í ljós eftir að menn höfðu undirritað þetta samkomulag — borubrattur fjármálaráðherra gerði það á þeim tíma — að menn litu mismunandi augum á það hverjum bæri að greiða hvað og hvað væri hvurs í þessum samgöngusáttmála. Bæjarfélög sem höfðu staðið í þeirri trú að ríkið ætlaði að reka borgarlínu fengu það framan í sig þegar á var gengið að það var alls ekki hugmynd þáverandi fjármálaráðherra að það yrði þannig, enda hefur engin slík hugmynd verið reifuð á Alþingi. Það fé til reksturs borgarlínu eins og hún er kölluð — það liggur enginn ádráttur fyrir um það að ríkið ætli að reka slíkar almenningssamgöngur. Það var hugmyndin fyrst með þessum samgöngusáttmála.

Nema hvað, nú er litið svo á að þessar helstu áformuðu framkvæmdir sem falla undir þennan samgöngusáttmála muni kosta rúma 300 milljarða kr. Ég ætla ekki að fara ofan í þá fjárhæð. Ég held að menn geti þrefað um hana. Einhverjir myndu segja að þetta væri töluvert hærri fjárhæð en aðrir gætu bent á að þetta yrði ekki svo dýrt. Allt að einu eru þetta framkvæmdir sem taka svo langan tíma að það er ekki hægt að fullyrða neitt um kostnað í fjárhæðum. Ég er þakklát fyrir það ef menn leggja 300 milljarða kr. á borðið nú árið 2026. Við skulum ræða málið út frá því.

Að sama skapi liggur fyrir að samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins gerir ráð fyrir að þessi mikli kostnaður verði fjármagnaður með veggjöldum að fjárhæð 143 milljarðar kr. Þetta eru tölur sem ég held að menn deili ekki um í þessari umræðu og ég ætla ekki að gera ágreining um. Ég bendi bara á það að þessi fjárhæð, 143 milljarðar kr., mun fyrst og fremst leggjast á Reykvíkinga. Þunginn í því sem samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins kveður á um nú felst í stórum og miklum framkvæmdum í landi Reykjavíkur. Ég nefni Sundabraut, Sæbrautarstokk og Reykjanesbraut við Bústaðaveg, sem er kannski eina jákvæða framkvæmdin sem nefnd er hér vegna þess að hún felur í sér mislæg gatnamót sem eru til þess fallin að auka flæði og liðka til fyrir umferð á meðan aðrar aðgerðir gera það ekki. Síðan er það Miklabraut í jarðgöngum.

Þetta eru þungu framkvæmdirnar. Þetta eru dýru framkvæmdirnar í samgöngusáttmálanum. Aðrar framkvæmdir sem voru í samgöngusáttmálanum þegar hann var gerður upphaflega voru verklegar framkvæmdir í nágrannasveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, framkvæmdir sem er jafnvel lokið. Að sjálfsögðu rituðu bæjarstjórar Sjálfstæðisflokksins undir samgöngusáttmálann með það fyrir augum að liðka til fyrir umferð í bæjarfélögum sínum, það lá alveg fyrir — Arnarnesvegur og einhver hringtorg og mislæg gatnamót og einhverjar tengingar í Kópavogi og Hafnarfirði. Það er í sjálfu sér ekki hægt að sakast við þá bæjarstjóra sem það gerðu. Þeir höfðu sína þröngu hagsmuni í huga. Enginn hafði hagsmuni Reykvíkinga í huga. Í Reykjavík voru vinstri menn við völd sem rituðu undir þetta samkomulag, reyndar við fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins. Ég vil árétta að hagsmunir Reykvíkinga varðandi samgönguáætlun eru að mjög miklu leyti fyrir borð bornir þegar kemur að því að liðka til fyrir umferð.

Ég hef ekki tíma í fyrstu ræðu til að fara yfir allar þessar aðgerðir. Ég vil aðeins nefna eina til að varpa ljósi á hversu djúpt Reykvíkingum hefur verið sökkt niður í flókna umræðu og ógagnsæja um þessa samgönguáætlun, allt í nafni borgarlínu. Almenningur þekkir allt þetta mál bara í tengslum við umræðu um borgarlínu, um það hvort borgarlína er góð eða ekki. Það er auðvitað margt annað í þessu.

Vandinn við borgarlínuverkefnið er að það hefur kallað á hugmyndina sem menn höfðu fyrst um borgarlínu, og ég rifja upp, að um væri að ræða einhvers konar léttlestir í Reykjavík. Almenningi var seld sú hugmynd að hingað væri að koma eitthvert lestakerfi. Vegna þess að þetta var lestakerfi þurfti að grafa niður götur. Síðan var horfið frá þeirri hugmynd að hafa þetta lestir. Þá voru nefndir sérstakir strætisvagnar. Þá þurfti líka að grafa niður í jörð til að koma þeim fyrir. Þeir þurftu að vera miðjusettir. Ég held að við séum enn stödd í þeim draumórakenndu hugmyndum að þetta sé tiltekin tegund af strætisvögnum sem þurfi endilega að vera í miðju akreina. Þær hugmyndir eru mjög kostnaðarsamar. Það er dýrt að fara í slíkar framkvæmdir sem þrengja að annarri umferð.

Ég vil taka dæmi. Miklabraut í jarðgöngum er nefnd í nefndaráliti sem ein af þeim framkvæmdum sem samgönguáætlun gerir ráð fyrir. Þar er gert ráð fyrir 2+2 akreinum jarðganga úr Skeifunni og vestur fyrir Snorrabraut. Gert er ráð fyrir samtals fjórum akreinum vestur úr Vesturbænum, eða frá Snorrabraut, og að Skeifunni, nákvæmlega eins og það er nú. Tvær akreinar eru á þessari leið og jafnvel þrjár á kafla. Höfum það í huga. Hér er gert ráð fyrir því að færa þennan veg í göng. Til að gera hvað? Á vegurinn áfram að halda sér ofan jarðar? Nei, hann á ekki að gera það. Það er aðeins verið að færa einn veg sem er til staðar, reyndar jafnvel breiðari, þrengja hann örlítið og setja inn neðanjarðargöng. Með þessari aðgerð er ekki verið að fjölga um eina einustu umferðaræð. Það er það sem þarf á þessari leið. Fjölga þarf umferðaræðum út úr vesturhluta Reykjavíkur inn í nágrannasveitarfélög og inn í vesturhluta eða norðurhluta Reykjavíkur líka, Grafarvog og Kjalarnes. Það er forgangsverkefnið. Þessi dýra aðgerð, að setja Miklubraut í jarðgöng, liðkar ekki til fyrir umferð heldur þvert á móti þrengir að henni.

Nú ætla ég að gerast svo djörf eins og allir þingmenn frá landsbyggðinni og kalla eftir jarðgöngum. Eins og næsti maður í þessu húsi styð ég heils hugar jarðgöng í mitt kjördæmi. Það á alltaf að vera einhver jarðgangagerð í Reykjavík. Ég get alveg staðið við það. Þau göng eiga ekki að koma núverandi vegum niður í jörð og gera Reykvíkinga að moldvörpum í sínu daglega starfi og á sínum daglegu ferðum um Reykjavík því að hver Reykvíkingur keyrir Miklubraut kannski mörgum sinnum á dag. Jarðgöng á að nota og þau á að setja niður í Reykjavík í þeim tilgangi að fjölga umferðaræðum — jarðgöng undir Nauthólsvík, jarðgöng yfir á Kársnes, jarðgöng þess vegna á Sæbraut eða upp á Kjalarnes.

Ég ætla ekki að fara í tæknileg atriði því að ég hef ekki forsendur til að ræða þau. Ég veit þó og treysti mér til að fullyrða að jarðgöng með þeim hætti verða að koma fyrir Reykjavík og þetta stækkandi svæði sem hér er. Að eyða öllu þessu fé í jarðgöng til þess eins að færa fínan veg niður í jörð er algjört glapræði.

Virðulegi forseti. Það eru einungis Reykvíkingar sem er ætlað að borga fyrir þetta borgarlínuævintýri vinstri manna í borgarstjórn Reykjavíkur. Því miður hafa vinir mínir í Sjálfstæðisflokknum í bæjarfélögum í kring hjálpað til við þessa draumórakenndu sýn. Þeir bera því við að þeir séu ekki að kalla eftir þrengingum á umferð í Reykjavík. Ég trúi því þegar þeir segja það. En þessi stefna er algjörlega ósjálfbær og vinnur gegn hagsmunum Reykvíkinga. Hún vinnur líka gegn þróun Reykjavíkur sem borgar sem ég ætla rétt að vona að menn líti á að sé enn borg í vexti. Reykjavík er borg sem á að stækka miklu meira. Reykjavík er höfuðborg landsins, hún á nóg af landi og við eigum að nýta það og fjölga íbúum Reykjavíkur. Við eigum að fjölga Reykvíkingum. Þannig hefur það ekki verið undanfarinn áratug. Fjölgun í Reykjavík er ekki hálfdrættingur á við þá fjölgun sem hefur orðið í nágrannasveitarfélögum. Af hverju skyldi það vera? Það er m.a. vegna þess að menn hafa ekki sinnt innviðum, hafa ekki bætt vegi, hafa tekið bílastæði af íbúum og gert mönnum almennt erfitt fyrir að komast leiðar sinnar í Reykjavík. Þessi samgönguáætlun, því miður, er sama marki brennd og sú síðasta sem var samþykkt hér fyrir mörgum árum að því leyti að hún tekur ekki tillit til þessa.

Síðan kemur innviðafélagið inn í þetta. Frumvarp um það liggur nú fyrir Alþingi og við munum mögulega afgreiða það á þessu löggjafarþingi eða hinu næsta. Ég hef í sjálfu sér ekki horn í síðu hugmyndarinnar um innviðafélag. Ég held að það geti alveg verið tilefni til að prófa þá fjármögnunarleið. Við höfum prófað alls konar aðrar leiðir. Það er alveg ljóst að við ætlum ekki að endurtaka þau mistök sem hafa verið gerð í innviðauppbyggingu hingað til. Við eigum að líta það jákvæðum augum að taka til kostanna ný tól, tæki og tækifæri í þeim efnum. Innviðafélagið lítur á þessar stóru framkvæmdir í Reykjavík sem tekjumódel. Því miður eru það einvörðungu Reykvíkingar sem munu bera þann kostnað og ég geri athugasemd við það.