157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:32]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ef hv. þingmaður er að spyrja mig hvort ég sé mótfallin því að Reykjavík geri einhvern sáttmála við nágrannasveitarfélögin um samgöngumál þá er ég það alls ekki. Ég held að það gæti verið til bóta. Auðvitað þarf að ná einhverju samkomulagi um tengingar vega og uppbyggingu almenningssamgangnakerfisins. Það liggur alveg fyrir að strætisvagnarnir, sem áður voru Strætisvagnar Reykjavíkur — það apparat stækkaði og er núna í eigu allra sveitarfélaganna. Ég held að það sé mikil stærðarhagkvæmni í því að reka almenningssamgangnakerfið með þeim hætti. Að sjálfsögðu eiga menn að gera samkomulag um slíkt. Vandinn við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins er hins vegar sú einstrengingslega stefna sem menn höfðu fyrir hönd Reykjavíkur í þessu máli, að það yrði að þrengja að einkabílnum. Það var yfirlýst stefna að hér þyrfti að draga úr einhverri losun koltvísýrings og það væri hlutverk Reykvíkinga að gera það með því að þrengja að umferð og setja upp þessa draumórakenndu léttlest, járnbrautarlest á Íslandi, 350.000 manns. Þetta er auðvitað einhver þvæla. Auðvitað held ég að menn sjái það í dag og menn búnir að viðurkenna það að þessar hugmyndir voru algerlega óraunhæfar. Þannig að nú erum við að tala um ofvaxið strætisvagnakerfi sem ætlað er að vera á miðjum akvegi. Þetta stenst ekki tímans tönn. Ég get bara vonað að nýr borgarstjórnarmeirihluti skeri upp herör gegn þessari stefnu og komi skikki á þetta, nái samkomulagi við nágrannasveitarfélögin, ef það þarf, um að bæta almenningssamgangnakerfið, en ekki á kostnað gatnagerðar í Reykjavík. Það getur ekki verið með mínu samþykki.