157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:34]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar fyrra svar. Ég get alveg tekið heils hugar undir með hv. þingmanni og ég held að það hafi Sjálfstæðismenn í borgarstjórn líka gert, talað um þessa aðför að einkabílnum með öllum þessum þrengingum, á meðan við sjáum í öðrum sveitarfélögum þar sem á að setja niður borgarlínu að þar á ekki að þrengja að umferð fjölskyldubílsins. En mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann um eitt sem hún nefndi í ræðu sinni. Það virðist vera litið neikvæðum augum að setja hér ákveðnar stofnbrautir eða vegi í stokk. Mér fannst það nú hljóma svolítið sérkennilega af því að við þekkjum þetta víða erlendis. Þar fer maður oft í ýmsa stokka þegar maður er að keyra innan borga, bara á Norðurlöndunum, og víða eru þessir stokkar nýttir bæði til að auka byggingarmagn og auðvelda umferð. Mig langar að spyrja hv. þingmann varðandi það að vera á móti því að einhverjir vegir séu settir í stokka, af því að það hefur ýmsa kosti í för með sér og við sjáum þetta víða erlendis. Er það ekki eitthvað sem hægt er að vinna með? Og það eykur jafnvel lífsgæði þeirra sem búa við hliðina á þessum brautum í tengslum við umferðarhávaða og getur aukið byggingarmagn eða græn svæði eða annað þegar ákveðin svæði eru komin í stokka.