samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Það hefur nú þegar verið slegið af að setja Miklubraut í stokk vegna þess að menn hafa komist að því að Miklabrautin er þannig að hún getur ekki farið í stokk. Þarna eru mikilvægar lagnir Reykvíkinga, þannig að eina leiðin til þess að koma að umferð neðan jarðar er í gegnum jarðgöng undir Miklubrautinni. Mér þykir ansi langt seilst að ætla að búa til jarðgöng frá Skeifunni inn að Snorrabraut fyrir Reykvíkinga til að ferðast dag frá degi. Hv. þingmaður þarf líka að athuga það að þegar slík jarðgöng eru gerð þá er útilokað eða að minnsta kosti mjög dýrt að ætla að búa til útkeyrslur úr þessum göngum. Þannig að ef Miklabrautin, sem er lífæð, hún er umferðaræðin í Reykjavík, ætti að vera í jarðgöngum þá er það bara ein átt. Ég hef hins vegar talað fyrir því og bent á mikilvægi þess að setja gatnamótin á Miklubraut í stokk þannig að það séu í raun komin mislæg gatnamót á þessum þremur gatnamótum sem skipta máli þar. Það er það sem þarf að gera þannig að umferðin geti farið austur–vestur, en líka norður–suður. Það skiptir miklu máli. Mér þykir þess vegna óheppilegt að nýr borgarstjórnarmeirihluti virðist ætla að leggja áherslu á að Miklabrautin fari í stokk og ég geri aðallega athugasemdir við það, fyrir utan það að þá kemst ekki umferðin norður–suður, að það er ekki verið að fjölga umferðaræðum. Við getum ekki hent 100 milljörðum eða 200 milljörðum í jarðgöng sem eru ekki að fjölga umferðaræðum. Ef við ætlum að gera jarðgöng þá skulu þau vera þannig að þau séu að búa til nýja umferð úr miðborg Reykjavíkur norður–suður. Það verður að vera einhver skynsemi í þessu og ég vona að borgarstjórnarmeirihlutinn taki þessi mál öll til endurskoðunar. Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur stuðning Miðflokksins í því, svo sannarlega, og það er ekki seinna vænna en að byrja strax í þeirri endurskoðun.