157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:38]
Horfa

Árni Helgason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hennar fínu yfirferð. Það var eitt atriði sem ég hjó sérstaklega eftir og langaði að spyrja út í. Ég tók eftir því að hv. þingmaður gerði aðeins að umfjöllunarefni lagalega stöðu samgöngusáttmálans. Mér fannst þetta svolítið áhugaverður punktur sem vakti hjá manni lögfræðilega forvitni, ef svo má að orði komast. Það væri gaman að heyra aðeins nánar frá þingmanninum að þessu leyti: Er lagaleg staða sáttmálans kannski eitthvað óljós? Þyrfti að skerpa á því í lögum? Auðvitað er þetta nefnt hér í samgönguáætlun en mér finnst þetta nefnilega áhugaverður punktur vegna þess að þarna eru auðvitað mjög umfangsmiklar skuldbindingar í ýmsar áttir sem dæmi og það er kannski að koma betur og betur í ljós hvað það er lögð mikil áhersla á veggjöld. Það hefur nú verið nefnt hér að nýjasta uppfærsla samgöngusáttmálans haldi því a.m.k. opnu eða vísi í það að það geti verið allt að 143 milljarðar í veggjöld. Maður veltir aðeins fyrir sér sömu spurningunni þar: Eru sveitarfélögin með þá heimild að semja með þeim hætti, í raun og veru bara með einföldum samningum? Eru einhver mörk á því hversu langt sveitarfélögin geta gengið? Það væri fróðlegt að heyra hvernig hv. þingmaður sér þetta og hvort svona stórir sáttmálar með þessar svakalegu tölur og hagsmuni undir þyrftu mögulega að einhverju leyti nánari skoðun eða meðferð hér á þingi áður en þeir eru endanlega afgreiddir.