samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ef það á að fara ein króna úr ríkissjóði í eitthvert verkefni, með vísan til þess sem samið er um í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þá liggur það alveg fyrir að það verður ekki gert án verulegrar aðkomu þingsins með umræðu og þar fram eftir götunum. Þessi samgöngusáttmáli var á sínum tíma kynntur sem viljayfirlýsing þar sem ríkissjóður var að kynna að hann væri tilbúinn til þess að gefa Keldnalandið, bara að gefa heilt land, til borgarinnar þannig að það væri hægt að vera með einhverja uppbyggingu þar tengda einhverju léttlestakerfi. Þessar hugmyndir hafa síðan bara breyst og þróast og ég veit ekkert í rauninni hvar það stendur. En það er auðvitað tilefni fyrir okkur hérna á þinginu að kalla eftir sérstakri umræðu um það hvaða augum fjármálaráðherra eða innviðaráðherra líta lagalega á þennan samgöngusáttmála, sem var uppfærður um daginn, og hvort menn, þessir háu herrar, hafi einhvern tímann í hyggju að ræða þessi mál við fjárveitingavaldið hér. Ég tel að það eigi nú alveg að vera skýrt að það verður ekki neitt gert án aðkomu þingsins. Síðan er það þessi samgönguáætlun, enda hefur hún verið svolítið rædd núna í tengslum við frumvarpið um innviðafélag. Þetta er auðvitað einhvers konar samspil. Menn hafa einmitt verið að gera athugasemdir við það hér í umræðu um innviðafélagið að þar sé innviðafélaginu algerlega í sjálfsvald sett hvaða framkvæmdir það fer í. Þannig að þegar það er komið á koppinn, þetta innviðafélag, verði þingið ekkert frekar spurt um það í hvaða framkvæmdir það félag fer í og hvort það verði einhver gjaldtaka af þeim vegaframkvæmdum sem þar verða inntar af hendi. Það er til umhugsunar fyrir þingið og það er kannski það sem við ættum síðan að ræða varðandi innviðafélagið.