samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tek undir þau sjónarmið sem hún nefnir, að maður hefur ákveðnar áhyggjur af því að það sé kannski almennt, og þessi samgöngumál eru kannski bara gott dæmi um það, verið að færa til samninga einhverra stofnana í formi sérfélaga, sem eru kannski sett á laggirnar í kringum samninga — við skulum alla vega segja að það sé verið að færa til ákvarðanatökuvaldið. Það er auðvitað alltaf spurning hvort kemur fyrst, hænan eða eggið, í þessu. Það eru kynntir með miklu pompi og prakt samningar um hitt og þetta og málunum er einhvern veginn stillt þannig upp, a.m.k. pólitískt, að þetta sé orðinn hlutur. En það má alltaf velta fyrir sér hvort eigi að koma fyrst í þessu, hænan eða eggið. Ég held að við séum sammála um það, ég og hv. þingmaður, að það megi a.m.k. þétta mjög rammann um það hvernig hin opinberu framlög í þetta eru. Það er ágætt að rifja upp, og ég ætla að koma aðeins betur inn á það í ræðu minni hér á eftir, framlögin í kringum þennan samgöngusáttmála. Í upphaflegum sáttmála var gert ráð fyrir að þau væru um 120 milljarðar þar til það var síðan uppfært í 311 milljarða, held ég að ég fari rétt með. Ég tek undir það sem hv. þingmaður nefndi hér áðan, að auðvitað er sú tala, þegar við erum hér að tala um einhver 10–20 ár og sennilega lengri tíma fram í tímann, 30 ár, í framkvæmdum, bara einhver punktstaða í dag. Það sem ég myndi kannski vilja fá að spyrja hv. þingmann um er: Með hvaða hætti væri best að útfæra þetta lagalega? Þyrfti um þetta sérlög eða þyrfti e.t.v. að taka á þessu í gegnum lög um sveitarstjórnir eða fjármál sveitarfélaga?