samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Varðandi gjaldtökuheimild félagsins og innviðafélags þá árétta ég að ég er ekki fráhverf hugmyndinni um innviðafélag. Ég held að það geti verið ágætt tól, verkfæri, til að fjármagna stórar framkvæmdir. En við í stjórnarandstöðunni, hv. þingmaður þar með talinn a.m.k., hans flokkur og Miðflokkurinn, og fleiri höfum verið að benda á að það þurfi auðvitað að vera einhver stjórn, einhverjar hömlur á ákvörðunum innviðafélagsins fyrir hönd skattgreiðenda og fyrir hönd ríkisins. Í því sambandi held ég að það liggi nú fyrir breytingartillaga í því máli þar sem einmitt er reynt að koma einhverjum böndum á ákvarðanir um gjaldtöku, t.d. í þessu, þannig að það sé ekki bara opinn tékki fyrir félag að fara í framkvæmdir og síðan að innheimta veggjöld um ókomna tíð af íbúum þess sveitarfélags og jafnvel án samráðs við sveitarfélagið líka, hvað þá ríkið, í þessu. Ég held að frumvarpið um innviðafélagið þarfnist verulega frekari umræðna, ekki bara út af einhverjum tæknilegum atriðum heldur af því að þetta er nýtt fyrirkomulag sem verið er að koma á laggirnar. Ég hef talað fyrir því að menn hvíli það mál og komi aftur með það næsta vetur þannig að málið fái aðeins að liggja einn heilan þingvetur hérna í umræðunni. En við sjáum til hvað gerist með það. En það er alveg rétt, hv. þingmaður tekur eftir því að þetta mikla bil úr 100 milljörðum í 300 milljarða bendir auðvitað til þess hversu einhvern veginn draumkenndar hugmyndir menn hafa og maður óttast að það sé verið að vinna þessi mál bara eftir þessu slagorði sem var vinsælt hérna: Enginn veit neitt en allir eru að gera sitt besta. Og mönnum finnst allt í lagi að það sé bara allt í einu tvöfaldað um 150 milljarða af því að menn eru hættir að hafa tilfinningu fyrir krónutölunum í þessum málum.