157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:07]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er ástæða til að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna því að hann veitir hérna, held ég megi segja, ferskt sjónarhorn á þessa umræðu og fór yfir mjög mörg atriði sem ég hefði gjarnan viljað spyrja nánar út í af því að mér þótti þau vel fram sett af hálfu hv. þingmanns. En ég kýs að nota þann stutta tíma sem gefst til þess að spyrja hv. þingmann út í áhyggjur mínar af kerfisvæðingu, nokkuð sem ég hef talað töluvert um alllengi og á ýmsum sviðum og ég hef sérstakar áhyggjur af í samhengi við þetta mál. Mér hefur þótt þetta borgarlínuverkefni hafa verið kerfisvætt á alveg ótrúlega skömmum tíma og í rauninni tekið frá pólitíkinni, þar með tekið frá kjósendum. Það sama má segja um það sem lagt er upp með í frumvarpi um innviðafélag sem er nátengt umræðu okkar um samgönguáætlun. Það virðist miða að því umfram annað að fjarlægja ákvarðanir í samgöngumálum frá stjórnmálamönnum, Sumir kunna að telja það hið besta mál en í því felst því miður um leið að verið er að fjarlægja ákvarðanirnar frá kjósendum. Hv. þingmaður nefndi að til stæði að endurskoða samgöngusáttmálann og það tel ég raunar mjög æskilegt og tímabært. En hefur hv. þingmaður áhyggjur af því að við séum engu að síður enn á þeirri braut hér á þinginu að færa ákvarðanatöku í mikilvægum málum, samgöngur eru vissulega mikilvægt mál, frá kjósendunum og fulltrúum þeirra og inn í eitthvert kerfi sem fer sínar eigin leiðir?