157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:10]
Horfa

Árni Helgason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða fyrirspurn og auðvitað er margt til í því sem þar kom fram. Ég held að það sé óhjákvæmilegt annað en að horfast í augu við að auðvitað höfum við kerfisvætt margt undanfarin ár og þó að kerfisvæðing sé vissulega ekki fallegt orð og ekki skemmtilegt þá er það kannski ekki alslæmt fyrirbæri. Við viljum auðvitað taka ákvarðanir að bestu manna ráðum og þannig að þær séu vel yfirfarnar af sérfræðingum. Ég held að ég hafi skilið punktinn hjá hv. þingmanni rétt, að þetta getur búið til ákveðin svona, ef ég má sletta, síló eða svolítið lokaðar einingar sem hætta að tala saman. Það er auðvitað afar slæmt. Það má alveg taka undir þá gagnrýni að borgarlínan sé dæmi um þetta. Mér fannst það, eins og ég var að nefna í minni fyrri ræðu, dálítið áberandi í borgarstjórnarkosningunum núna — kosningar eru nú svo magnað fyrirbæri að því leytinu til að þá þurfa stjórnmálamenn og þeir sem taka ákvarðanir að fara og hitta blessaðar kjósendurna og þeir verða að heyra þeirra áhyggjur og hlusta á þá. Og ég held að það hafi komið býsna skýrt fram núna í aðdraganda þessara kosninga að það eru afskaplega lítil tengsl við verkefnið hjá hinum venjulega, ég held að megi bara segja höfuðborgarbúa, það hafi kannski verið mestur fókus á þetta í kringum Reykjavíkurkosningarnar. Ég er ekki viss um að margir geti sagt frá því, þekki það, viti hver sé í forsvari fyrir það eða hvernig þetta muni allt saman þróast. Og af því að hv. þingmaður nefndi fjarlægð frá kjósendum þá myndi ég segja já, það er alveg klárlega áhyggjuefni í þessu máli og það þarf að vera verkefnið í þessari endurskoðun. Ekki bara fara í tæknilegu atriðin heldur velta líka upp hvernig þetta verkefni að breyta samgöngum í borginni til hins betra verði fært nær venjulegu fólki.