157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:12]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég get ekki annað en tekið undir þetta svar hv. þingmanns. Ég held að þetta sé raunin, að borgarbúar, íbúar höfuðborgarsvæðisins, hafi mjög takmarkaða þekkingu á því í hvað stefnir með þetta borgarlínuverkefni en það á við um fleiri. Það á við um ýmsa stjórnmálamenn líka og þó liggur þetta að miklu leyti fyrir í áformum þeirra sem að þessu standa og það apparat allt saman stækkar jafnt og þétt með alls konar kynningum og upplýsingafulltrúum, verkfræðingum og fólki í hinum ýmsu stöðum. Kerfisvæðingin, afsakið orðbragðið, heldur áfram. Eins og ég nefndi hér í fyrra andsvari þá tel ég afskaplega mikilvægt að ráðist verði í endurskoðun. En hverju mun hún skila? Ég spyr því ég hef heyrt þetta áður. Það var á síðasta kjörtímabili þegar þáverandi fjármálaráðherra lýsti því yfir að honum væri nóg boðið. Það var þegar þessi áform um borgarlínuna og samgöngusáttmálann, en borgarlínuna sérstaklega, voru komin langt fram úr kostnaðaráætlun áður en vinnan var hafin og fjármálaráðherrann Bjarni Benediktsson kallaði eftir endurskoðun. Ég fagnaði því og það gerði líka hv. þm. Bergþór Ólason, hinn þingmaður Miðflokksins, á sínum tíma. En hvert leiddi sú endurskoðun? Hún leiddi til þess að það var einfaldlega ákveðið að setja enn þá meiri peninga í borgarlínuverkefnið af hálfu ríkisins, ekki hvað síst. Og því spyr ég hv. þingmann: Hvað vill hv. þingmaður sjá koma út úr endurskoðun, mikilvægrar og nauðsynlegrar endurskoðunar borgarlínuverkefnisins?