samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni sem fyrr fyrirspurnina. Ég held að við séum að sjá þetta að mörgu leyti með svipuðum augum. Það sem hefur komið fram hér er kannski þessi fjarlægð frá kjósendum og hvernig þetta verkefni hefur þróast og orðið dálítið fjarlægt hinum venjulega kjósanda. Við vorum sammála um að þetta er eitthvað sem kannski fólk þekkir orðið lítið til, áttar sig lítið á. Þetta skiptir miklu máli vegna þess að ef við gefum okkur að það verði haldið áfram að óbreyttu með verkefnið, og ég vísa til þess sem ég nefndi áðan, þá sé ég ekki að menn nái þeim svakalega framkvæmdaþunga sem þyrfti til. Ég minni aftur á þennan óformlega óvísindalega servéttuútreikning sem ég kynnti hér, mér sýnist við þurfa að framkvæma fyrir 2 milljarða á mánuði alla mánuði núna til 2040 til að ná þessu. Sennilega er það meira því að talan á eftir að hækka. Og þetta er allt svolítið mikilvægt að hafa á bak við eyrað vegna þess að stóru og þungu framkvæmdirnar, að fara í Miklubrautina, fara í Ártúnsbrekkuna, fara í Suðurlandsbrautina —þetta er allt saman eftir. Það eina stóra sem er byrjað að gera er Fossvogsbrúin, sem auðvitað er bara lögð yfir sjó þannig að hún er ekki beint fyrir. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þegar af verður og það verði farið í þetta svakalega rask sem mun óhjákvæmilega hafa líka mjög mikil áhrif á umferð yfir dálítinn tíma í Reykjavík, að akkúrat þarna þurfi tengingin að vera til staðar.
Hv. þingmaður spurði hvaða breytingar ég vildi sjá. Ég ætla nú ekki að segja að ég hafi það kannski alveg forskrifað. Ég vonast til þess að nýr meiri hluti horfi á þetta dálítið, ég ætla að leyfa mér að segja, róttækt, velti því fyrir sér hvort það eigi jafnvel að stokka verkefni einhvern veginn upp, skipta því í búta o.s.frv. (Forseti hringir.) Ég bíð spenntur eftir þeirri endurskoðun.