samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Þegar ég þurfti frá að hverfa í fyrstu ræðu minni um samgönguáætlun var ég að hefja umfjöllun um það sem einmitt kom til tals hér rétt áðan, samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og borgarlínuna, sem er, ef svo má segja, tryllti fíllinn í stofunni sem þó hefur verið reynt að fela því að þetta heyrir undir samgöngusáttmálann. Það er vísað í þetta en um leið er reynt að fela innihald málsins, eins og er nú orðið svo títt í stjórnmálum samtímans.
Þetta verkefni á sér langa sögu og hún er ekki skemmtileg. Ég myndi segja að hún sé sorgarsaga sem byrjaði fyrir allnokkrum kjörtímabilum síðan. Þá er ég að vísa í kjörtímabil í sveitarstjórnarkosningum þegar Samfylkingin í Reykjavík og núverandi hv. þm. Dagur B. Eggertsson fundu upp á því ráði að boða mikla byltingu í samgöngumálum, eins og var reyndar boðið líka í leikskólamálum og ýmsu öðru en ekkert af þessu gekk eftir, sem væri svokölluð borgarlína. Þessu var gefið sérstakt nafn og þess vegna skrifa ég alltaf borgarlínu með stóru B-i, af því að þetta er ekkert þekkt fyrirbæri og menn hafa ólíkar skoðanir á því hvað þetta raunverulega er. En þetta er a.m.k. verkefni sem er búið að búa til heila stofnun, heilt ríki í ríkinu, utan um.
Hvernig gat það gerst, frú forseti? Hvernig gerðist það að vanhugsuð hugmynd Samfylkingarinnar í Reykjavík, í einum borgarstjórnarkosningum og síðan öðrum og síðan þeim þriðju, er orðin að stórmáli í samgöngum á Íslandi? Svarið við því hefur aldrei fengist, frú forseti, hvers vegna ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ákvað undir forystu ráðherra Sjálfstæðisflokksins, fjármálaráðherrans, og Framsóknarflokksins, samgönguráðherrans, að taka að sér að fjármagna og framkvæma kosningafyrirheit Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þetta kallaði á heilmikla umræðu hér í þinginu og ég er ekki viss um að hæstv. forseti hafi þolinmæði fyrir því að ég reki það allt saman í þessari ræðu. Það verður að bíða framhaldsumræðunnar.
Hv. þingmenn Miðflokksins á þeim tíma, sem voru nú bara tveir, gerðu sitt allra besta til þess að draga fram staðreyndir málsins en eins og svo oft er í pólitíkinni nú til dags nálguðust menn ekki staðreyndirnar, ekki innihaldið heldur umbúðirnar og þetta var allt kynnt á þeim forsendum að þetta væri til þess ætlað að bæta almenningssamgöngur. Raunar vil ég nefna það líka að þáverandi hv. þingmaður, Vilhjálmur Árnason, sem nú hefur látið af störfum sem þingmaður, útskýrði þetta þannig að með því að fallast á þessar kröfur Samfylkingarinnar í Reykjavík væri verið að greiða lausnargjald. Hann kallaði þetta lausnargjaldið þannig að ríkið mætti fara í aðrar framkvæmdir á vegum ríkisins, þannig að Reykjavíkurborg og nágrannasveitarfélög myndu leyfa ríkinu að setja peninga í nauðsynlegar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Þetta var ágætlega orðað hjá hv. þingmanni sem flutti líka prýðisgóða ræðu um þá samgönguáætlun sem við ræðum nú áður en hann hvarf á braut til annarra starfa og ég nota tækifærið til að óska honum góðs gengis í þeim störfum. Það er mikill fengur að því fyrir íbúa Reykjanesbæjar, tel ég, að fá þann nýja meiri hluta sem fyrrverandi þingmaður, Vilhjálmur Árnason, hefur myndað.
En aftur að borgarlínuverkefninu sem á sér þessar sérkennilegu rætur. Það liggur enn ekki fyrir eftir öll þessi ár hvað þetta verkefni muni kosta. Við vitum að það á að fela í sér auknar álögur á almenning, ekki bara í Reykjavík eða á höfuðborgarsvæðinu heldur um land allt. Það liggur fyrir og við vitum að þeir sem standa að verkefninu vita ekki sjálfir hvað það mun kosta og hvernig því mun vinda fram þótt þeir séu þegar búnir að ráða til starfa talsverðan fjölda fólks, ekki hvað síst til að kynna verkefnið og tala fyrir því. Einnig eru ýmsir hönnuðir, verkfræðingar, verkfræðistofur jafnvel, að störfum við að undirbúa þetta. Jafnframt er enn þá óljóst, þótt framkvæmdir séu ekki farnar af stað fyrir alvöru, ekki bara hvað framkvæmdir munu kosta heldur hvernig eigi að bera rekstrarkostnaðinn. Og hann verður ekki lítill, frú forseti. Menn þekkja vandræði Strætó þar sem skattgreiðendur greiða, held ég, yfir tvo þriðju af miðaverði í strætó. Þetta verður hins vegar miklu dýrara og, sem gleymist nú oft, til stendur að reka hefðbundið strætisvagnakerfi áfram samhliða borgarlínunni til þess að fólk geti farið í strætó á einum stað og tekið strætisvagn að einhverri borgarlínustöð og farið á aðra stöð og þar bíður kannski, vonandi, strætó sem tekur menn nær áfangastað. Allt er þetta verkefni hin mesta fásinna og ber öll merki verkefna sem fela í sér endalausan kostnað fyrir skattgreiðendur, endalausan í þeirri merkingu að það mun halda áfram að bætast við ár eftir ár, áratug eftir áratug. Áætlanir um framkvæmdakostnað munu ekki standast. Gerir einhver ráð fyrir því? Engu að síður er þetta sett af stað með allt þetta í óvissu.
Á sama tíma sjáum við talsverðar breytingar í tækni og samgöngum sem er einfaldlega litið fram hjá og ákveðið að fara í ákveðna 19. aldar hugsun í samgöngumálum, enn þá ófjármagnaða. Það reyndist alveg furðu erfitt á sínum tíma að vekja athygli á því hvers konar fásinna þetta væri og fá þáverandi stjórnvöld til að svara fyrir þetta. Það tókst reyndar með talsverðri umræðu hérna í þingsal að ná inn nokkrum varnöglum í nefndarálit meiri hlutans, þar með talið um að með samþykktinni væri ekki verið að fallast á það að ríkið tæki að sér fjármögnun, en hæstv. forseti getur rétt ímyndað sér þegar á reynir hvort ekki verði komið hér og sagt að ríkið sé skuldbundið og verði að taka að sér að reka þetta.
Það hefur vakið athygli mína, sérstaklega í aðdraganda síðustu sveitarstjórnarkosninga, að frambjóðendur hinna ýmsu flokka til sveitarstjórna á höfuðborgarsvæðinu fögnuðu því alveg sérstaklega að fengist hefðu vilyrði fyrir því að ríkið tæki að sér aukinn kostnað á borgarlínunni og þar með væru íbúar sveitarfélagsins sloppnir. En það er bara ekki svo, frú forseti. Íbúar sveitarfélaga eru líka skattgreiðendur til ríkisins og allt lendir þetta hjá þeim á endanum.
Þá að áformunum sjálfum. Hæstv. fyrrverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, sagði það ítrekað hér í þingsal og í viðtölum að enginn vissi hvað borgarlína væri. Þetta var um svipað leyti og ríkið var að setja óhemju peninga í að þetta næði fram að ganga. En það hefur legið fyrir og það liggur fyrir til hvers borgarlínan er ætluð, hvernig hún eigi að virka, og það er loksins núna, þótt það hafi legið fyrir í mörg ár, byrjað að koma upp á yfirborðið og til umræðu. Það má kannski segja að sérstaka athygli hafi vakið umræðan um Suðurlandsbraut. Það er atriði sem ég og fleiri hófum að benda á fyrir fjórum árum, hugsa ég, frú forseti, tíminn líður svo hratt, kannski eru það fimm ár, því það lá fyrir þegar farið var af stað með þetta hvernig ætti að fara með Suðurlandsbrautina. En það er bara einn dálítill kafli í þessum áformum um borgarlínu. Hvað varðar hina kaflana verður það líklega að bíða næsta kafla í ræðu minni og þess vegna bið ég hæstv. forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.