157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:27]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans yfirferð hér áðan. Mig langar aðeins að ræða við hv. þingmann í fyrra andsvari mínu um borgarlínu og samgöngusáttmála. Nú er það svo að bæði Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur hafa verið mjög gagnrýnir á borgarlínuna og sérstaklega hér í Reykjavík þar sem það hefur verið pólitísk ákvörðun að þrengja að fjölskyldubílnum, ólíkt því sem er í öðrum sveitarfélögum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er við völd. Þar á ekki að þrengja að fjölskyldubílnum þótt borgarlínan sé að koma og ég held að það sé ágætt að halda því líka til haga.

Nú talar hv. þingmaður hér um samgöngusáttmálann og borgarlínuna o.fl. en það eru samt mörg önnur svæði. Ég nefni t.d. Guðmund Fertram sem hefur kallað eftir álíka samgöngusáttmála fyrir Vestfirðinga og ég veit að aðrir sveitarstjórnarmenn úti á landi myndu vilja sjá einhvers konar samgöngusáttmála við ríkið. Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvort hann sæi fyrir sér að það væri hægt að gera álíka samgöngusáttmála, þó svo að það sé ýmislegt hægt að gagnrýna í þeim samgöngusáttmála sem heimamenn eða sveitarstjórnarmenn hér hafa gert við ríkið. Samt sem áður sjáum við núna í samgönguáætlun að akkúrat það sem gerist er að við erum hér með fjögurra, fimm ára áætlun sem mun líklega standast en svo eru önnur tíu ár, sem er annað og þriðja tímabil, þar sem þessu er öllu riðlað fram og til baka. Það er enginn fyrirsjáanleiki. Sveitarstjórnarmenn geta ekki gengið að því að eftir sex ár verði farið í þessa framkvæmd af því að það getur bara breyst með næsta ráðherra. Þess vegna held ég að margir á landsbyggðinni hafi líka verið að kalla eftir því að fá meiri fyrirsjáanleika, meiri festu, fá einhvers konar sáttmála, samkomulag, við ríkið um það hvað eigi að gera og í hvaða röð. Mig langar að heyra hugleiðingar hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um þetta.