157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:32]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni kærlega fyrir hans fyrra svar. Þetta hangir allt saman, fjármálaáætlun, innviðafélag og samgönguáætlun. Þetta hangir allt saman og nú er það algjörlega komið á hreint og orðið ljóst að það er ekki hægt að setja Fljótagöng inn í innviðafélagið. Það er ekki hægt, a.m.k. ekki strax og verður líklega ekki hægt næstu árin. Þá á samt að fara að byrja á Fljótagöngum og þá kemur það bara í ljós að það er ekki verið að ráðstafa og það eru ekki til peningar í Fljótagöng. Það vantar 20 milljarða upp á að það sé hægt að standa við það að fara af stað í Fljótagöng. Að sama skapi er verið að lofa hér í samgönguáætlun núna 6,3 milljörðum ef Kjalarnesvegurinn verður tekinn út úr samgönguáætluninni inn í innviðafélagið, sem allir sjá að er ekki að fara að gerast í haust en samt á að útdeila af þessum 6,3 milljörðum 2,1 milljarði strax á næsta ári í hin og þessi verkefni.

Mig langar að spyrja hv. þingmann þegar við horfum á að það fer ekki saman hljóð og mynd milli innviðafélagsins, samgönguáætlunar og hvað þá fjármálaáætlunar: Er hv. þingmaður ekki sammála mér í því að miðað við að forsendur fjármálaáætlunar eru bara gamlar, ekki miðað við nýjustu forsendur sem eru í dag, og miðað við að innviðafélagið getur ekki tekið við þeim verkefnum sem samgönguáætlunin gerir ráð fyrir að það eigi að taka við, og svo er innviðafélagið uppsett eins og það er uppsett með alls konar stjörnumerktum verkefnum sem félagið getur ekki einu sinni tekið við og er ekki hægt að setja inn í félagið, er hv. þingmaður ekki sammála mér í því að þessi mál eru bara hvergi nærri tilbúin til þess að verða afgreidd hér á næstu dögum á Alþingi Íslendinga?