samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég ætla að gera stutt hlé á hringferð minni um landið sem byrjaði á Akranesi og er núna komin alla leið í Norðurþing þar sem ég er að fara yfir vegahluta samgönguáætlunar eins og hún liggur fyrir, en mun halda áfram með þá yfirferð eftir kannski nokkrar ræður. En nú ætla ég að koma inn á þann kafla yfirferðar minnar sem ég kalla víti til að varast. Ég ætla að byrja hérna í júnímánuði árið 2020. Þá var tekist á í þinginu um stofnun hlutafélags, opinbers hlutafélags sem síðan fékk nafnið Betri samgöngur ohf., sem er mögulega eitthvert mesta rangnefni sem nokkru fyrirtæki hefur hlotnast en það er engu að síður nafn fyrirtækisins sem var stofnað þarna með lögum eða veitt heimild til að stofna með lögum í júní 2020.
Það sem ég vildi rifja upp hér og fer kannski betur inn á í næstu ræðu eru forsendurnar sem þar voru lagðar til grundvallar. Þarna var, eins og venja er, nefndarálit meiri hluta, sem rammaði inn sjónarmið meiri hluta þáverandi fjárlaganefndar til málsins, lagt fram fyrir 2. umræðu og síðan var lagt fram framhaldsnefndarálit fyrir 3. umræðu þar sem var hnykkt á sameiginlegum skilningi stjórnarmeirihluta og stjórnarandstöðu hér í þinginu. Það er skemmst frá því að segja að það hefur verið staðið við fæst í þeim efnum. Flest þeirra atriða sem eru sérstaklega römmuð inn í framhaldsnefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar, sem var á þskj. 1874 á 150. löggjafarþingi, flest þeirra varnaðaratriða eða öryggisventla sem við í þingflokki Miðflokksins á þeim tíma lögðum áherslu á að væru hér inni hafa fallið. Þetta er það sem ég óttast að verði sömu örlög þeirrar vinnu sem er samtvinnuð samgönguáætlunarvinnunni núna í tengslum við innviðafélagið. Ég er hræddur um að sú vinna lúti sömu örlögum, að hér verði sagt það sem þarf til að koma málinu í gegnum þingið og svo dusti menn þessi vandamál af borðinu og geri þetta bara eins og þeim sýnist. Vítin eru hér til að varast þau og frá því í júní 2020, þegar við í þingflokki Miðflokksins féllumst á á grundvelli þess að lagt yrði fram framhaldsnefndarálit í fjárlaganefnd, til að setja varnagla gagnvart stofnun þessa félags sem varð Betri samgöngur ohf., hafa í rauninni meira og minna allir varnaglarnir verið slegnir af. Það kalla ég víti til að varast því að nú erum við hér að ræða samgönguáætlun sem meiri hlutinn, stjórnarmeirihlutinn, fullyrðir enn, þó að það fækki nú hratt þeim sem hafa það í sér að segja þann brandara, enda hefur hann súrnað hratt, að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Það blasir við hverjum sem er bærilega talnalæs að svo er ekki. Það eru svona fuglar í skógi um fjármögnun en ekkert í hendi. Það er innviðafélag sem er svo óljóst hvað varðar hlutverk og útfærslu að það er allt eins líklegt að ekkert verði af því. Þetta kalla menn fullfjármagnaða samgönguáætlun. Í rauninni eru allir þættir jarðgangaáætlunar samgönguáætlunarinnar utan kvóta, allir, meira að segja Fljótagöngin. Það er búið að halda hér ræður sem ramma það býsna vel inn að Fljótagöngin eru í raun úti í vindinum. Þeir fjármunir sem þarf inn í einhvers lags innviðafélag, A- eða C-hluta félag, til að komast til lands með Fljótagöng, þeirra er hvergi getið, hvergi.
Af því að tíminn er svo stuttur nú um stundir ætla ég að hafa sérstaka ræðu næst um framhaldsnefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar, bara þannig að því sé haldið til haga. Það eru sjónarmið sem mér finnst algjört lykilatriði að við höfum í huga ef við á annað borð ákveðum hér, þingið, meiri hluti þess, að halda áfram með áform um stofnun innviðafélags, jafn óljós og þau kunna að vera. — Ég vil biðja frú forseta að setja mig aftur á mælendaskrá.