157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:42]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Hér ræðum við samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030. Ég kem hér inn í viku sem varaþingmaður og er mjög þakklát fyrir að fá tækifæri til að taka þátt í þessari mikilvægu umræðu. Samgöngumál brenna virkilega á okkur en ég hefði þó kosið að koma fyrr að vinnunni þannig að ég hefði getað haft áhrif á lokaútgáfu samgönguáætlunar, en svo er ekki og ég er þakklát fyrir að fá að tjá mig hér í dag.

Við ræðum samgönguáætlun sem liggur fyrir þinginu með þeim breytingum sem meiri hlutinn hefur nú lagt fram. Ég kem frá Austurlandi og mig langar til að ræða samgönguáætlun út frá því sjónarhorni. Samgönguáætlun er ekki aðeins áætlun um vegi, brýr og flugvelli. Hún er fyrst og fremst áætlun sem hefur áhrif á byggðaþróun hér á landi. Hún segir okkur til um hvar stjórnvöld ætla að fjárfesta í framtíð landsins og hvaða svæðum er ætlað að vaxa og dafna. Þess vegna skiptir miklu máli að samgönguáætlun sé sanngjörn og að fjármunum sé skipt á milli landshluta á bæði gagnsæjan og sanngjarnan hátt.

Mig langar að byrja á að ræða aðeins svæðaskiptingu Vegagerðarinnar sem samgönguáætlun byggir á. Þegar þingmenn hér skoða framkvæmdatölur fyrir sín svæði og ef ég tek núna fyrir austursvæði Vegagerðarinnar þá gefa sér flestir að þar sé um að ræða framkvæmdir á Austurlandi en raunin er hins vegar önnur. Stærsti hluti framkvæmdafjár sem runnið hefur til austursvæðis undanfarin ár hefur farið til framkvæmda í Suðurkjördæmi þannig að ekki snertir það Norðausturkjördæmi en er samt innan skilgreinds svæðis austursvæðis. Þetta eru framkvæmdir sem eru einkum við Hornafjarðarfljót. Það hafa farið um 9 milljarðar kr. í það verkefni, ef ég reikna rétt, ef ekki bara meira en það. Það fjármagn kom allt af framkvæmdaramma austursvæðis þrátt fyrir að framkvæmdin sé utan Austurlands. Verkefninu er ekki enn lokið og samkvæmt áætlun ársins í ár, 2026, fer rúmur milljarður króna til viðbótar í þær framkvæmdir á meðan einungis um 300 millj. kr. fara til vegaframkvæmda innan Austurlands núna á þessu ári.

Virðulegur forseti. Austurland er eitt mesta verðmætasköpunarsvæði landsins. Þar búa einungis um 2,9% landsmanna en svæðið í heild skapar um fjórðung af vöruútflutningstekjum þjóðarinnar sem eru um 240 milljarðar árlega þannig að framleiðsla á hvern íbúa á Austurlandi er margföld á við landsmeðaltal. Hún er tíföld. Ég hvet alla til að kynna sér ítarlega greiningu á efnahagsumsvifum Austurlands sem greiningarfyrirtækið Analytica vann fyrir Samband sveitarfélaga á Austurlandi. Við létum vinna þessa greiningu af því að við vildum taka pláss og sýna hversu öflugt svæði þetta er. Við áttum von á ríkisstjórn Íslands 2023 og við létum greina verðmætasköpun svæðisins árið 2022 og áttum í góðu samtali við ríkisstjórnina og fengum lof fyrir það hversu faglegt skjalið væri. Í fyrra tókum við ákvörðun um að bæta við tveimur árum og þá eru það árin 2023 og 2024. Það sýnir að það er stöðug verðmætasköpun á þessu svæði milli ára þannig að þetta er gríðarlega öflugt svæði. Þessi verðmætasköpun byggir á öflugu atvinnulífi, sjávarútvegi, fiskeldi, iðnaði, orkuframleiðslu og vöruflutningum. Það hlýtur því að vera eðlileg krafa að ríkið standi vörð um þessa verðmætasköpun með því að byggja upp þá nauðsynlegu innviði sem atvinnulífið byggir á.

Veiðigjöld voru samþykkt hér á Alþingi og markmiðið var að þau gjöld myndu rata beint til baka til samfélaganna í uppbyggingu samgönguinnviða en það er því miður ekki að sjá fyrir austan. Þess í stað sjáum við vegakerfi sem er víða komið að þolmörkum. Á Austurlandi eru einnig flestar einbreiðar brýr landsins. Einbreiðar brýr með þungatakmörkunum standa þannig á lykilleiðum atvinnulífsins. Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum er einnig lykilinnviður sem tengir saman Austurland og Norðurland. Hún þolir ekki þungaflutninga en framkvæmdin kemur samt ekki til framkvæmda fyrr en 2031–2040. Hvers vegna er ekki sett fjármagn í svo mikilvæga tengingu milli Austurlands og Norðurlands? Sama á við um Lagarfljótsbrúna á Egilsstöðum sem er um aldargömul brú sem þolir ekki þungaflutninga. Samt hefur framkvæmd við nýja brú ítrekað verið færð aftar í forgangsröðun. Við sjáum það með Lagarfljótsbrúna, maður er alltaf vongóður um það eigi nú að taka hana í gegn en í hverri samgönguáætlun er hún alltaf á öðru tímabili. Það gerðist aftur núna þar sem framkvæmdin á að fara fram á bilinu 2036–2040. Það er ótrúlega lýjandi að horfa upp á lykilinnviði sem þarfnast framkvæmda og þeim er ávallt seinkað yfir á annað tímabil hverrar samgönguáætlunar. Það er leiðinlegt að horfa upp á það.

Í samgönguáætlun er lagt til aukið fjármagn til viðhalds vega og því ber að fagna. Mig langar að nefna 3 milljarða kr. viðbótarfjármagn sem var einnig samþykkt hér á Alþingi og sett til viðbótar í viðhald vega í fjáraukalögum en stærstur hluti þess fjár fór til Vesturlands og Vestfjarða. Ég skil það vel því að þar er gríðarlega mikil þörf fyrir verulegar úrbætur, vegakerfið þar hefur víða verið í slæmu ástandi. En ég vil bara segja það líka að vegakerfið á Austurlandi er bara ekki síður komið að þolmörkum. Það blasir við að uppsöfnuð viðhaldsþörf, slitnir vegir, einbreiðar brýr og þungatakmarkanir, bæði á vegum og brúm, hafa bein áhrif á atvinnulíf, flutninga og öryggi. Því hlýtur spurningin að vakna hvort nægilegt jafnræði ríki í forgangsröðun viðhaldsfjármagns milli landshluta þegar aðeins um 80 milljónir af þessu 3 milljarða kr. viðbótarframlagi fer til Austurlands. Á austursvæðið sjálft komu um einhverjar 200 milljónir, kannski rúmar, en ég tala hér um Austurland og það er umdæmissvæði SSA og það voru bara um 80 milljónir sem komu. Við forvitnuðumst um það og við sáum að ekki kom fjármagnið inn á svæðið.

Virðulegi forseti. Austurland er eitt atvinnu- og þjónustusvæði og í svæðisskipulagi Austurlands 2022–2044 liggur skýr stefna fyrir um uppbyggingu samgönguinnviða fjórðungsins. Ég hef gegnt formennsku í Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi allt síðasta kjörtímabil en skilaði því embætti nýlega af mér, fyrir örfáum dögum, ekki viku síðan. Það var vegna kosninga og tvö stærstu sveitarfélögin, Fjarðabyggð og Múlaþing, skiptast á að hafa formennsku. Fjarðabyggð sinnir nú formennskunni. Mér hefur fundist sorglegt að sjá bæði ráðherra og þingmenn vitna í óeiningu Austurlands vegna stefnu er varðar samgöngubætur fyrir fjórðunginn og fara fram með það að við séum stefnulaus í þeim málum. Sem betur fer höfum við öll málfrelsi í fjölmiðlum en mér finnst ófaglegt að taka ekki fullt mark á stefnumótandi skjali sem er rétthærra aðalskipulagi sveitarfélaganna og sem allir sveitarstjórar og bæjarstjórar á Austurlandi skrifuðu undir og fóru meira að segja hér suður á land til Skipulagsstofnunar, í þeirra húsnæði, þar skrifuðu allir undir þetta skjal sem lýðræðislega kjörnir fulltrúar unnu að. Þetta skjal hlýtur að vega þyngra en almenn umræða á netinu.

Þegar engir fjármunir koma inn á Austurland skapast eðlilega núningur. Í svæðisskipulagi Austurlands er í gangamálum lögð áhersla á framkvæmdir við Fjarðarheiðargöng og að samhliða fari fram rannsóknir og hönnun ganga þaðan yfir í Mjóafjörð og í Hvannadal. En þegar við skoðum samgönguáætlun blasir við að áfram á einungis að rannsaka og hanna göng víða um land á meðan fullhönnuð göng, Fjarðarheiðargöng, eru sett til hliðar þrátt fyrir að vera fullrannsökuð, hönnuð og tilbúin í útboð. Um 700–800 millj. kr. hefur nú þegar verið varið í undirbúning þessara ganga. Ég spyr bara: Er samgönguáætlun þá orðin marklaust plagg í stórum framkvæmdum? Er verið að fara vel með skattfé þegar mörg hundruð milljónum, nánast tæpum milljarði, er varið í undirbúning verkefna sem síðan eru færð til hliðar og ekki er unnið eftir á milli samgönguáætlana? Ef það er viðurkennt verklag innan núverandi ríkisstjórnar að sveigja fram hjá fullhönnuðum verkefnum verður maður hugsi og spyr: Verður þá ekki öllum stóru verkefnum þessarar ríkisstjórnar líklega breytt eða hætt við þau þegar næsta ríkisstjórn tekur við? Er það viðurkennt verklag núverandi ríkisstjórnar sem hún mun samþykkja þegar kemur að því að ný ríkisstjórn taki við? Maður verður bara hugsi yfir því hvernig eigi að koma stórum framkvæmdum áfram sem taka lengri tíma en tíma einnar ríkisstjórnar.

Virðulegi forseti. Á Seyðisfirði er ein mikilvægasta tenging Íslands við Evrópu með komu Norrænu þar sem miklir vöru- og fólksflutningar fara fram. Samt býr samfélagið þar enn við hæsta fjallveg landsins sem liggur til þéttbýlis þar sem aðeins er um eina vegtengingu að ræða sem lokast reglulega yfir vetrartímann. Þegar skriðurnar féllu á Seyðisfirði árið 2020 og rýma þurfti stóran hluta bæjarins eða bara allan bæinn var heppni að Fjarðarheiði var fær á þeim tíma. Hugsið ykkur ef hún hefði verið lokuð, þá hefði eina leiðin verið sjóleiðin til að flytja heilt bæjarfélag. Þið getið ímyndað ykkur hvernig þessu fólki líður í dag með að Fjarðarheiðargöng hafi verið sett til hliðar. Þetta er í rauninni óskiljanlegt og ég get ekki sett mig í þeirra spor.

Virðulegi forseti. Sama sagan birtist einnig í verkefninu um heilsársveg yfir Öxi. Öxi hefur verið í undirbúningi í um tvo áratugi. Verkefnið er fullhannað og innifelur um 70 km vegstyttingu. Samt á nú að draga framkvæmdirnar enn lengra fram í tímann. Það á að klára þessa litlu framkvæmd á um átta árum núna. Í núverandi meirihlutaáliti voru 800 millj. kr. færðar frá mikilvægu hringtorgi á Egilsstöðum til að flýta framkvæmdum við Öxi. Við viljum öll flýta Öxi, það er þannig, framkvæmdum sem á að vera löngu lokið. En nú blasir við að Öxi tekur samt átta ár í viðbót í framkvæmd. Framkvæmdatíminn verður þá frá upphafi um 28 ár og er alls ekkert að rjúka af stað og samt var hringtorgið á Egilsstöðum tekið út úr samgönguáætluninni. Hringtorgið er ekki einu sinni sett inn lengra fram í tímann í samgönguáætlun. Það er afar slæmt því gríðarleg umferð fer um miðbæ Egilsstaða sem er miðstöð verslunar og þjónustu og mikilvæg aðkoma í rauninni á Austurlandi að Egilsstaðaflugvelli. Einnig er gríðarleg umferð tengd komum og brottförum Norrænu þannig að mikið álag er því á miðbæ Egilsstaða. Það að hringtorgið sé ekki sett inn í framtíðarplön þessarar ríkisstjórnar finnst mér óábyrgt, það er bara ábyrgðarhluti að fara í það. Maður heyrði velvilja fyrir því og mér er því brugðið að þetta sé farið af áætlun.

Virðulegur forseti. Ég fagna því þó að loksins sé farið í uppbyggingu aðflugsljósa, akbrautar og flughlaðs á Egilsstaðaflugvelli sem er áhersla í takt við flugstefnu Íslands og styrkir hlutverk flugvallarins sem varaflugvallar. Það er mikilvægt verkefni. Ég tel jafnframt eðlilegt að skoða verði breytingartillögu hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar sem kemur með tillögu um að framkvæmdunum ljúki á þremur árum í stað fimm ára. Það veldur mér hins vegar miklum vonbrigðum að lenging flugbrautarinnar hafi verið tekin út úr langtímaáætlun. Sú framkvæmd er mjög mikilvæg fyrir flugöryggi og framtíðartækifæri tengd vöruútflutningi af svæðinu. Lenging flugbrautarinnar skiptir einnig máli varðandi flugöryggi þegar aðstæður eru erfiðar eins og við lendingu og þegar er hálka eða slydda á flugbrautinni af því að það er ekki sama hvorum megin þú lendir, á norðurendanum ertu með brautina en ef þú ert á suðurendanum er það vegur og girðing sem liggja upp við brautina þannig að hún styttist verulega. Það hefur verið gert ráð fyrir þessu í texta en ég sé þetta hvergi núna. Ég hef eiginlega ætlað mér að leggja fram breytingartillögu um að koma þessari lengingu fram í framtíðarplön.

En, virðulegi forseti, mikil ábyrgð hvílir á meiri hlutanum þegar samgönguáætlun verður samþykkt. Það þarf að gæta þess að fjármunum sé skipt af sanngirni milli landshluta. Það þarf einnig að gæta þess að verðmætasköpun og þjóðhagslegir hagsmunir séu hafðir að leiðarljósi. Austurland á ekki að vera afgangsstærð í samgönguáætlun en það er því miður staðreynd. Slík nálgun er ekki aðeins ósanngjörn gagnvart íbúum svæðisins heldur ógnar hún þeirri verðmætasköpun sem á sér stað þar í dag og er mikilvæg fyrir ríkissjóð. Við erum að tala um landshluta sem skapar um fjórðung af vöruútflutningstekjum þjóðarinnar, framleiðir um 30% af heildarraforku landsins og hefur gríðarleg tækifæri til enn frekari orkuframleiðslu. Tækifærin eru einnig í nálægð við Evrópu. Við erum náttúrlega með Norrænu sem kemur að landi, vöruflutninga og fólksflutninga og þetta gríðarlega landrými sem við erum með án jarðhræringa. Hvernig væri að horfa til þessara tækifæra og viðhalda einnig núverandi verðmætasköpun með fjárfestingum í samgönguinnviðum? Það er á ábyrgð þeirra sem sitja á Alþingi hverju sinni að tryggja að samgönguáætlun styðji við áframhaldandi verðmætasköpun um allt land, ekki síst á þeim svæðum sem leggja hvað mest til þjóðarbúsins. Austurland ætti því alls ekki að vera afgangsstærð í samgönguáætlun en það er því miður staðreynd.

Ég vil í lokin hvetja þingmenn til að hugsa um það sem ég hef farið hér yfir og að þeir beiti sér fyrir því að leiðrétta þennan halla. Það hallar á Austurland og eins og ég hef komið inn á er austursvæðið bara stór hluti af Suðurkjördæmi eða alla vega stórar framkvæmdir sem fara fram þar sem taka af okkar fjármagni. Ég hvet þingmenn til að beita sér fyrir því að auka framkvæmdir og með því auka um leið traust og trú landsmanna á samgönguáætlun hverju sinni. Farið sé eftir stefnumótun og fólk geti trúað því. Það þarf ekki mjög stóra framkvæmd til þess að hún taki lengri tíma en ein ríkisstjórn. Undirbúningur, rannsókn, framkvæmdir — framkvæmdatíminn er oft hjá tveimur ríkisstjórnum, kannski þremur. Við erum ekki sátt við það að við hver ríkisstjórnarskipti fari allt til hliðar. Þá hafa fólk og íbúar ekki alveg trú á Alþingi Íslendinga og að það sé vel farið með skattfé okkar.