157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:02]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ágætu ræðu. Hún kom oft að því hvað varðar sitt svæði, þ.e.a.s. Norðausturkjördæmi, og ræddi í sinni ræðu mikið um það hvernig því væri háttað þar sem mikil þörf er á uppbyggingu samgöngumannvirkja. Ég tek undir með hv. þingmanni þegar hún talar um að það sé ansi misskipt á milli svæða, t.d. miðað við verðmætasköpun, á svæðum sem hún talaði um á Austurlandi, Austfjörðum, að þar væri verðmætasköpun allt að tíföld per íbúa en að sama skapi ekki svipað fjármagn sett í samgönguinnviði. Ég ætla að spyrja hv. þingmann um bls. 17–18 í nefndaráliti meiri hlutans þar sem gerður er leikur í raun um að færa 6,3 milljarða úr Kjalarnesvegi (Forseti hringir.) og færa til annarra verkefna og ég sé á upptalningunni á bls. 18 að það er ekki króna sem gengur þar til Austfjarða. Hvert er álit hv. þingmanns á því?