samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir andsvarið. Þetta eru einmitt hugleiðingar sem ég hef velt fyrir mér, þetta fjármagn sem ætti að koma vegna innviðafélagsins, af því að þetta skarast allt, innviðafélagið og samgönguáætlun, og ég sakna þess að vita ekki hvert fjármunirnir eiga að fara ef það skapast rými með innviðafélaginu. Ég hef nú heyrt að jafnvel séu þau að skoða að setja aukna fjármuni í Öxi og þá var talað um einhverjar 400 milljónir en hvort það var árið 2029, mig minnir það. Mér finnst það bara svo langt inn í framtíðina. Auðvitað viljum við meiri fjármuni en eins og með hringtorgið þegar það voru teknar 800 milljónir og sagt að það yrði 2029–2030, það er ekkert að fara af stað þannig að það er bara næsta ríkisstjórn sem á að greiða. En takk fyrir spurninguna.