samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Hörpu Svavarsdóttur fyrir hennar svar við þessu. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni að mér yfirsást þessar 400 milljónir en þetta eru fjármunir sem koma, sýnist mér, á næsta kjörtímabili. Ríkisstjórnin er sífellt að leika sér að einhverjum tölum um fjármuni til ýmissa framkvæmda og ýmissar uppbyggingar innviða á fjölmörgum sviðum, ekki bara samgangna og er þá að tala um fjármuni sem munu vera á næsta kjörtímabili eða jafnvel þarnæsta. Þannig að ég spyr hv. þingmann hvort hún geti verið sammála mér í því að þessi ríkisstjórn hér, sem talar um að ræsa vélar og lyfta sleggjum o.fl., er ekki að fara að gera nokkurn skapaðan hlut. Það er ekki að sjá að það sé neitt að gerast. Það eru bara áform, bara tal. Það eru bara loforð sem næsta ríkisstjórn á að framkvæma.