157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:07]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og þetta eru einmitt áhyggjur sem ég deili, af því að það koma svo litlir fjármunir inn á Austurland og ég var að vekja athygli á því í ræðu minni. Svo til þess að setja örlítið meiri fjármuni var ekki hægt að setja meiri fjármuni inn á Austurland heldur þurftum við innan Múlaþings að færa á milli verkefna hjá okkur, þannig að það var tekið úr hringtorginu og sent inn. Ég hélt að það væri til að flýta Öxi en þá var sett inn 2029–2030 og eins og kom fram í máli hv. þingmanns snertir þetta næstu ríkisstjórn þannig að ég er vonlítil um að það sé eitthvað að fara að gerast. Það er líka bara byggt á ræðu minni um þau mál sem er snúið algjörlega við á milli ríkisstjórna, að það virðist ekki vera neinn fyrirsjáanleiki og fjármögnun í framkvæmdum. En Austurland gefur heilmikið af sér með allri sinni verðmætasköpun og við erum bara að fara fram á að fá örlitla prósentu til baka í innviði.