157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:08]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Hörpu Svavarsdóttur fyrir prýðisgóða ræðu. Hún einblíndi svolítið á sitt svæði, eðlilega, austursvæði áætlunarinnar og fór í raun og veru mjög vel yfir stöðuna. Þar sem ég hef bara eina mínútu í andsvar langar mig að koma strax að því sem mig langar að spyrja þingmanninn að. Hún kom inn á Fjarðarheiðargöngin og maður skilur ergelsi Austfirðinga yfir því að þau hafi verið sett aftar í forgangsröðun þó svo að Fljótagöng séu líka mjög mikilvæg. Ráðherra hefur verið með miklar yfirlýsingar varðandi Fljótagöngin og varðandi þessa jarðgangaáætlun um að það eigi að byrja að bora á næsta ári, 2027, en það er hins vegar ekkert farið að gera og Fjarðarheiðargöngin voru klár í að fara að bora. Mig langar að spyrja þingmanninn: Telur hún, miðað við það sem við vitum núna, að þetta er algjörlega ófjármagnað (Forseti hringir.) og það eru engar áætlanir, að áætlanir ráðherrans muni standast? Að boranir — þá er ég ekki að tala um vegasamgöngur heldur boranir — muni hefjast við Fljótagöng á næsta ári?