samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir andsvarið. Þetta er góð spurning. Varðandi Fjarðarheiðargöng: Í aðdraganda kosninga var það bara þannig með ríkisstjórnina að það átti að rjúfa jarðgangastoppið. Við vitum að þetta eru stór verkefni og þau taka langan tíma þannig að til að rjúfa það þarf að byrja að bora. Það er augljóslega ekki byrjað að bora. Það var hægt að gera það með því að fara í okkar framkvæmd, Fjarðarheiðargöng. En nú er bara nýtt verkefni á borðinu og ég hef enga trú á því að það komist í gang miðað við hvað tekur langan undirbúningstíma að vinna að göngum þannig að hægt sé að byrja að bora. Ég hef enga trú á því. Hverju sinni, þegar verið er að vinna að svona stefnumótunaráætlun varðandi göng eða fleira, þá á auðvitað að vinna mjög faglega að því. Við verðum að standa við það. Ef fólk er að breyta um stefnu, t.d. í jarðgangamálum — eins og með Austurland, við þurfum örugglega bara að bíða í 20 ár í viðbót áður en nokkuð verður byrjað að bora ef það koma alltaf nýjar hugmyndir. Ég er ekki hrifin af nýjum hugmyndum í þessu.