157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:12]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir seinna andsvarið. Þetta eru einmitt hugleiðingar sem ég er með. Varðandi göng: Það hafa alltaf verið framkvæmdir við ein göng hér á landi en þetta hefur verið lengsta jarðgangastoppið sem hefur verið akkúrat núna. Byggt á því að fyrir kosningar átti að rjúfa þetta gangastopp og byrja að bora — það er ekkert verið að byrja að bora og það er gríðarleg þörf á göngum, eins og Fljótagöngum og fleiri göngum. Ég geri ekki lítið úr því. Við þurfum að hafa þannig aðferðafræði að við getum verið með framkvæmdir við tvenn göng í einu. Ég skil ekki af hverju er alltaf sparað við jarðgangagerð þegar við erum að reyna að tryggja öryggi almennings. Þetta ýtir undir verðmætasköpun og öflug atvinnusvæði. Ég hef litla trú á því að það verði byrjað að bora þarna hjá Fljótagöngum. Það er alveg skýrt að innviðaráðherra sneiðir fram hjá Fjarðarheiðargöngum og vill þessi göng, en ég hef litla trú á því að byrjað verði að bora, því miður.