157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:14]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Berglindi Hörpu Svavarsdóttur fyrir góða og yfirgripsmikla ræðu. Hún kom inn á mikið af þeim punktum sem hafa verið hér í umræðunni. En mig langar til að taka undir með hv. þingmanni, bæði í tengslum við ræðurnar hér en líka það sem ég hef lesið eftir hv. þingmann um það að auðvitað eru Fjarðarheiðargöng og það hvernig við fjárfestum í flugvellinum fyrir austan, á Egilsstöðum, ekkert annað en þjóðaröryggismál, þ.e. að hafa þessa lykilinnviði í lagi. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji ekki að það sé ákveðin misskipting þegar við erum að horfa á fjárfestingar, annars vegar í Keflavík og hins vegar við þá flugvelli sem eru á landsbyggðinni. Er ekki tækifæri fyrir utan samgönguáætlun til að nýta (Forseti hringir.) fjármagn, sem hefur verið hugsað í aukin útgjöld til varnarmála, til að treysta einmitt flugvelli annars staðar á landinu í samhengi við umræðuna um þjóðaröryggi?